Evil Madness samanstendur af Pétri Eyvindarsyni, Jóhanni Jóhannssyni, BJ Nilsen og meðlimum Stilluppsteypu, þeim Sigtryggi Berg Sigmarssyni og Helga Þórssyni.

Evil Madness samanstendur af Pétri Eyvindarsyni, Jóhanni Jóhannssyni, BJ Nilsen og meðlimum Stilluppsteypu, þeim Sigtryggi Berg Sigmarssyni og Helga Þórssyni. Þessi fjórða plata flokksins ber með sér kómískt yfirbragð og meðlimir virðast hafa ágætan húmor fyrir sjálfum sér. Super Great Love býður upp á tölvutónlistarblöndu sem virðist teygja anga sína allt frá tölvuleikjum níunda áratugarins til sýruteknós 21. aldarinnar. Platan byrjar á laginu „Divine Sensual Love Fantasy“ sem er ansi þokkafullt eins og nafnið gefur til kynna. Glyskennt tölvupoppið gæti eflaust fengið einhvern með sítt að aftan og í skóm með gormareimum til að dansa vélmennadansinn. Því næst tekur við lagið „Sexy Feeling All Year Long“ sem er ekki eins grípandi en kunnuglegt stef lagsins „(I Can't Get No) Satisfaction“ fær mann til að brosa. Ekki eru öll lögin þó eins brosleg. Lögin „Exciting Night Games“ og „Café Eindhoven“ hafa talsvert alvarlegri undirtón. Í heildina litið er platan þó frekar flöt og einsleit og hefði mátt fara aðeins út fyrir tölvuforritin til að ná meiri dýpt. Einföld tölvuhljóðin verða hálfstirð á köflum og laglínur ekki sérlega grípandi. Húmorinn kemst þó ágætlega til skila og ef ég gæfi einkunn fyrir það hversu góðir lagatitlarnir væru þá væri þetta án nokkurs vafa fimm stjörnu plata.

Davíð Már Stefánsson