Harðir Statham og De Niro snúa bökum saman í hasartryllinum Killer Elite.
Harðir Statham og De Niro snúa bökum saman í hasartryllinum Killer Elite.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Kvikmyndir Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Kvikmyndin Killer Elite verður frumsýnd hér á landi í dag en einn af framleiðendum hennar er Sigurjón Sighvatsson.

Kvikmyndir

Helgi Snær Sigurðsson

helgisnaer@mbl.is

Kvikmyndin Killer Elite verður frumsýnd hér á landi í dag en einn af framleiðendum hennar er Sigurjón Sighvatsson. Handrit myndarinnar er byggt á bók Ranulph Fiennes, The Feather Men og segir af breskum fyrrverandi sérsveitarmanni, Danny, sem heldur til Óman í því skyni að bjarga félaga sínum og læriföður, Hunter sem þar er haldið föngnum af ættbálkahöfðingja, sjeik Amr. Amr setur honum afarkosti, hann verði að drepa þrjá fyrrum meðlimi bresku leyniþjónustunnar sem bera ábyrgð á dauða þriggja sona hans og taka játningar þeirra upp á myndband, ellegar verði Hunter tekinn af lífi. Danny leitar aðstoðar tveggja fyrrum félaga sinna úr sérsveitunum og leggja þeir saman á ráðin. Babb kemur í bátinn þegar Fjaðurmenn, leyniráð sem vernda á fyrrum leyniþjónustumenn, kemst á snoðir um ráðabruggið og fer að rannsaka málið. Hefst þá mikill eltingaleikur og barátta upp á líf og dauða. Í aðalhlutverkum í Killer Elite eru Robert De Niro, Jason Statham og Clive Owen. Miklar kvikmyndastjörnur þar á ferð.

Leikstjóri myndarinnar er Norður-Írinn Gary McKendry og er þetta fyrsta kvikmynd hans í fullri lengd en hann á að baki fjölda sjónvarpsauglýsinga sem hlotið hafa verðlaun, m.a. auglýsingar fyrir IKEA og Porsche og stuttmyndina Everything in this Country Must sem tilnefnd var til Óskarsverðlauna árið 2005. Blaðamaður ræddi við leikstjórann í fyrradag og spurði hann fyrst hvernig samstarf þeirra Sigurjóns hefði hafist.

Nef fyrir hæfileikum

„Fyrir nokkrum árum hringdi hann óvænt í mig. Hann hafði séð eitthvað af verkum mínum og vildi hitta mig. Ég sagði honum að eiginkona mín ætti von á barni og hann svaraði: „Já, en hún er ekki búin að eiga það,““ segir McKendry og hlær. Þeir hafi hist og rætt málin, komist að því að þeir hefðu svipaðan smekk fyrir kvikmyndum og hann hefði sagt Sigurjóni að hann hefði áhuga á að leikstýra kvikmynd í fullri lengd. „Hann er lunkinn í því að koma auga á hæfileikafólk, hann er eiginlega Malcolm McLaren kvikmyndageirans,“ segir McKendry kíminn. Úr hafi orðið fyrrnefnd stuttmynd sem tilnefnd var til Óskarsverðlauna og þaðan hafi leiðin legið yfir í kvikmynd í fullri lengd.

„Ég hef verið spurður að því af hverju ég hafi gert svona umfangsmikla, fyrstu kvikmynd og ég hef svarað því til að nær væri að spyrja þá sem vildu ekki fjármagna minni myndirnar. Við vorum með tvær minni í sigtinu en það gekk ekki upp. Þessi gerði það hins vegar.“ McKendry segir heiminn vissulega alltaf að breytast en eitt breytist þó ekki, stríð verði alltaf háð og þá m.a. barist um olíulindir. „Myndin gerist árið 1980 og sjáðu bara ástandið í dag,“ segir McKendry. Bresku SAS-sveitirnar gerðu árás á Óman árið 1972 og gerist myndin átta árum síðar.

„Hver væri ekki taugaveiklaður?“

Fyrr í vikunni ræddi blaðamaður við Sigurjón og sagði hann að það hefði tekið verulega á taugar McKendry að hringja í De Niro í fyrsta sinn, hann hefði nánast þurft að halda í höndina á honum á meðan á símtalinu stóð. Blaðamaður ber þetta undir McKendry sem skellihlær. „Hver væri ekki taugaveiklaður?“ segir hann um símtalið og segir Sigurjón nánast hafa skriðið inn í símtólið. Sigurjóni hafi verið mjög í mun að hann klúðraði ekki símtalinu. „Ég var að tala við einn af mínum guðum. Ég ólst upp í Belfast og við sáum ekki kvikmyndir frá 9. áratugnum því öll kvikmyndahúsin höfðu verið sprengd í loft upp. Við sáum myndir frá 8. áratugnum og ég ólst upp við að horfa á De Niro og tók hann í guðatölu. Síðan er mér réttur síminn og sagt að þessi guð vilji tala við mig og hugsanlega leika í myndinni minni. Og ég hafði um tíu mínútur til að ná honum á mitt band,“ segir McKendry.

– Kom hann með setninguna frægu úr Taxi Driver: „Ertu að tala við mig?!“?

McKendry hlær. „Nei, það var frekar: „Af hverju ertu að tala við mig?“,“ segir hann og skellihlær. Þetta hafi verið frábært símtal. Samskiptin við De Niro hafi verið ákveðin jafnvægislist, aðdáun hans á honum hafi ekki mátt vera of augljós, hann hafi þurft að bæla hana niður. Það sé vissulega erfitt að leikstýra slíkum manni og mikilvægt að minna sig á að þekktir leikstjórar í dag, Martin Scorsese og fleiri, hafi verið í sömu stöðu snemma á ferli sínum, þegar þeir voru ungir og lítt þekktir. Kvikmyndastjörnur á borð við De Niro vilji heldur ekki finna fyrir aðdáun samstarfsmanna sinna, þær séu umkringdar aðdáendum alla daga og komnar með nóg af því. „Það erfiðasta var að þurfa að hringja í Bob, viku áður en hann átti að fara til Cannes og fara fyrir dómnefndinni þar, og segja honum að við þyrftum að taka aukatökur og að hann þyrfti að safna aftur skeggi,“ segir McKendry. De Niro hafi því verið skeggjaður í Cannes.

Illa við heiti myndarinnar

– Þetta er hasarmynd, ekki satt?

„Þetta er hasartryllir. Ég valdi ekki titil myndarinnar og þoli hann ekki. Ég held að titillinn og stiklan gefi þá mynd að hún sé einföld hasarmynd en hún er það ekki. Hún er byggð á raunverulegum atburðum, það er alvörusaga í henni og mjög áhugaverðar fléttur og flækjur sem tengjast yfirvöldum og leynifélögum. Þetta er ekki bara skothríð og sprengingar, þó að slíkt sé vissulega stór hluti af sögunni. Í mörgum hasarmyndum er mikill sársauki en engar tilfinningar í spilinu. Þetta er ekki þannig mynd, það eru tilfinningar í þessari. Þetta er hasarmynd fyrir fullorðið fólk. Einhver sagði að þetta væri ekki hasarmynd hins hugsandi manns heldur hasarmynd sem fær mann til að hugsa,“ segir McKendry.

– Það hlýtur að vera býsna flókið að leikstýra hasarmynd með öllum sínum áhættuatriðum og skipulagningu?

„Satt best að segja er það mjög skemmtilegt. Aðalatriðið er að vera virkilega vel undirbúinn og tryggja að maður hafi nægan tíma. Þetta getur verið afar hættulegt. Við vildum ná sérstökum stíl í hasarnum. Myndin er um ofbeldishneigða menn, beiting ofbeldis er þeim eðlileg og því var mikilvægt að láta De Niro, Statham og Owen leika í áhættuatriðunum. Þetta er mun auðveldara fyrir Statham því hann hefur haft lifibrauð sitt af áhættuleik en fyrir Bob og Clive var þetta mun erfiðara. Þeir þurftu að leika í virkilega erfiðum slagsmála- og skotbardagaatriðum. Það krafðist mikillar skipulagningar og undirbúnings og ég er virkilega ánægður með útkomuna, maður fær tilfinningu fyrir því að þeir hafi gert þetta í raun og veru og það tel ég mikilvægt í hasarmyndum,“ segir McKendry. Miklu máli skipti að vera með frábæran hóp áhættuleikara og sérfræðinga í áhættuatriðum, líkt og verið hafi í Killer Elite. „Við vorum með gaur sem kallaður er Dr. Boom, hann sá um sprengingarnar í Marokkó. Ef sprengjumaðurinn í tökum er kallaður Dr. Boom veit maður að hann er sá besti í faginu,“ segir McKendry og hlær innilega.

Sögusviðið Írland

Hvað næstu verkefni varðar segir McKendry að þeir Sigurjón ætli að vinna áfram saman. Hann hafi skrifað handrit ásamt rithöfundinum Colum McCann upp úr bók David Martin, The Road to Ballyshannon. Sögusviðið er Írland á tímum borgarastyrjaldarinnar, árið 1922. „Við höfum rætt við fjölda frábærra leikara,“ segir McKendry um það verkefni. Það sé þó skammt á veg komið.