Varnarklúður.
Norður | |
♠KG107 | |
♥109642 | |
♦Á9 | |
♣G10 |
Vestur | Austur |
♠9642 | ♠85 |
♥Á3 | ♥D875 |
♦D3 | ♦KG104 |
♣KD632 | ♣854 |
Suður | |
♠ÁD3 | |
♥KG | |
♦87652 | |
♣Á97 |
Bæði Bocchi (fyrir Allegra) og Cima (fyrir Angelini) hófu vörnina gegn 3G með litlu laufi. Blindur átti fyrsta slaginn á millilauf og sagnhafarnir tveir spiluðu hjarta í öðrum slag á gosann heima og ás vesturs. Nú dró til tíðinda.
Spilið er frá úrslitaleik ítölsku klúbbanna, Allegra og Angelini, sem Allegra-hópurinn vann 206-127. Bocchi skoraði nokkur stig með góðri vörn sinni hér. Hann spilaði fyrst ♣K, sem sagnhafi varð að dúkka, en skipti síðan yfir í ♦D. Málið afgreitt.
Á hinu borðinu spilaði Cima strax litlum tígli undan drottningunni. Sagnhafi fór upp með ásinn og Garozzo í austur kallaði með ♦G. Tígullinn var þar með stíflaður og vörnin fékk aðeins fjóra rauða slagi: tvo á hjarta og tvo á tígul.