Cristiano Ronaldo
Cristiano Ronaldo
„Við erum bjartsýnir, með gott sjálfstraust og vitum hvað við þurfum að gera,“ sagði Paulo Bento, landsliðsþjálfari Portúgala, við fréttamenn í gær fyrir leikinn gegn Íslendingum í undankeppni EM í knattspyrnu en þjóðirnar mætast í Porto í...

„Við erum bjartsýnir, með gott sjálfstraust og vitum hvað við þurfum að gera,“ sagði Paulo Bento, landsliðsþjálfari Portúgala, við fréttamenn í gær fyrir leikinn gegn Íslendingum í undankeppni EM í knattspyrnu en þjóðirnar mætast í Porto í kvöld.

„Ísland hefur aðeins fjögur stig sem það fékk í leikjunum á móti Kýpur en það tapaði bara 1:0 fyrir Danmörku og Noregi svo við berum virðingu fyrir íslenska liðinu og vitum að það getur gert okkur skráveifu. Staðan er þannig að við verðum að vinna og það er það eina sem skiptir máli. Við verðum að vera skæðir í sóknarleiknum og koma í veg fyrir að andstæðingarnir valdi okkur einhverjum usla. Við þurfum líka að vera undir það búnir að vera þolinmóðir,“ sagði Bento, sem getur stillt upp sínum skærustu stjörnum á borð við Cristiano Ronaldo úr Real Madrid, Nani sem leikur með Manchester United og Raul Meireles sem er á mála hjá Chelsea.

gummih@mbl.is