Sara Björk Gunnarsdóttir
Sara Björk Gunnarsdóttir
Sara Björk Gunnarsdóttir skoraði tvö af mörkum sænska meistaraliðsins Malmö þegar liðið burstaði ítalska liðið Tavagnacco, 5:0, í seinni viðureign liðanna í 32-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í gær.

Sara Björk Gunnarsdóttir skoraði tvö af mörkum sænska meistaraliðsins Malmö þegar liðið burstaði ítalska liðið Tavagnacco, 5:0, í seinni viðureign liðanna í 32-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í gær. Sara opnaði markareikninginn fyrir Malmö með marki á 13. mínútu en hún skoraði svo fjórða mark liðsins á 67. mínútu en Sara hefur skorað 11 mörk í deildinni fyrir Malmö-liðið sem er í harðri baráttu um meistaratitilinn. Söru var skipt útaf á 82. mínútu en Þóra B. Helgadóttir varði mark Malmö allan tímann.

Í 16-liða úrslitunum mætir Malmö liði SV Neulenbach frá Austurríki.

gummih@mbl.is