Dekkjamaður Arnar Tryggvason segir bíleigendur vera vandláta og vilja öryggið þegar kemur að vali á dekkjum. Hann starfar á hjólbarðaverkstæði N1 við Fellsmúla í Reykjavík en hann á að baki tuttugu ára feril í dekkjabransanum, sem svo er nefndur.
Dekkjamaður Arnar Tryggvason segir bíleigendur vera vandláta og vilja öryggið þegar kemur að vali á dekkjum. Hann starfar á hjólbarðaverkstæði N1 við Fellsmúla í Reykjavík en hann á að baki tuttugu ára feril í dekkjabransanum, sem svo er nefndur. — Morgunblaðið/Golli
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Vetrartörnin á hjólbarðaverkstæðum að hefjast. Alveg vitlaust að gera. Ágætar álfelgur og mörg merki af dekkjum. Hóflegt gjald á hótelinu.

Bíleigendur sem til okkar koma hafa gjarnan sótt í gæðadekk eins og t.d. Michelin. Á undanförnum árum hefur tilhneigingin verið í þá átt: fólk vill einfaldlega öryggi og gæði. Michelin eru dekk sem standa alltaf fyrir sínu og seljast vel. Einnig bjóðum við dekk frá öðrum framleiðendum eins og til dæmis Fortuna, Kumho og Cooper,“ segir Arnar Tryggvason á hjólabarðaverkstæði N1 við Fellsmúla í Reykjavík.

Törn þegar föl fellur

Dekkjavertíðin er að hefjast. Föl féll á jörðu norðanlands í fyrradag en henni fylgdi snörp lota á hjólbarðaverkstæðum þar. Þess er þá ekki langt að bíða að eitthvað fari að grána hér sunnanlands og eru starfsmenn hjólbarðaverkstæða N1 albúnir að takast á við törnina. „Yfirleitt eru þetta nokkrir dagar sem er alveg vitlaust að gera frá morgni til kvölds; það er allra fyrstu snjóadagarnir. Svo róast þetta og verður jafnara,“ segir Arnar sem hefur starfað á hjólabarðaverkstæðum í tuttugu ár. Hann hefur lengst unnið hjá N1 sem rekur fjölda verkstæða á höfuðborgarsvæðinu.

Talsverður áróður hefur verið rekinn fyrir því til dæmis af hálfu borgarinnar að fólk aki á naglalausum dekkjum, en sú þróun hefur verið mjög hæg. Flestir eru á sumar- og vetrardekkjum og eiga gjarnan báða umgangana á á felgum. N1 hefur að undanförnu boðið álfelgur á sérstöku tilboðsverði. Sextán tomma felgur sem ganga á flestar tegundir fólksbíla og jepplinga fást á frá 15.500 kr. stk. og 17 tomma felgur frá 19.500 kr. stk.

Mæla loft og stilla dekk

„Fólk sér hag í því að eiga sumardekk og vetrardekk á felgum og geta þannig sparað sér umfelgun vor og haust. Það breytir samt ekki því að gjarnan borgar sig að láta starfsmenn á hjólbarðaverkstæðum setja þau undir og láta þá í leiðinni loftmæla dekkin og jafnvægisstilla sem er mikilvægt öryggis- og sparnaðaratriði, sem ekki má vanmeta,“ segir Arnar.

Fyrir nokkrum árum fór N1 að bjóða þá þjónustu að geyma dekk fyrir bíleigendur, sem leggja dekk inn að hausti um leið og vetrarhjólbarðarnir eru settur undir bílinn. Að vori eru svo sumardekkin aftur leyst út. Hóflegt gjald er tekið fyrir þessa þjónustu sem fólki líkar vel, að sögn Arnars. Þeir sem til dæmis búa í fjölbýlishúsum hafa gjarnan takmarkað geymslupláss til dæmis í kjallarakompum og fyrir það fólk er dekkjahótelið góður og þægilegur kostur.

Yfirförum og þvoum felgurnar

„Að undanförnu hafa margir komið til okkar og tekið út vetrardekkin, en rólegu dagana á sumrin notum við til þess að yfirfara þau og þvo felgurnar. Þá erum við í góðum samskiptum við okkar viðskiptavini en þegar komið er fram á þennan tíma hausts sendum við gjarnan smáskilaboð til þeirra sem við geymum dekkin fyrir – og bendum þeim á að nú fari að verða tímabært að koma með bílinn og gera kláran fyrir veturinn. Það er þjónusta sem fólk kann vel að meta, enda hafa viðbrögðin jafnan verið góð,“ segir Arnar Tryggvason hjá hjólbarðaverkstæði N1 við Fellsmúla í Reykjavík. sbs@mbl.is