Girnileg Ekki er víst að margir vilji smakka þessa ógeðsköku en hún er frábært borðskraut.
Girnileg Ekki er víst að margir vilji smakka þessa ógeðsköku en hún er frábært borðskraut.
Til að skemmta sér og forvitnast um ólíklegustu hluti er ekki úr vegi að tékka á vefsíðunni freakepedia.com.
Til að skemmta sér og forvitnast um ólíklegustu hluti er ekki úr vegi að tékka á vefsíðunni freakepedia.com. Þar er semsagt gomma og glás af myndum og myndböndum um allt milli himins og jarðar og margt af því sérlega áhugavert, sumt fyndið, annað skrýtið og allt þar á milli. Hægt er að skoða eftir flokkum, meðal annars hlátri (lol), áhugaverðu (interesting), krúttlegu (cute), mistök (fail) og ýmsu fleiru. Til dæmis er hægt að skoða í efsta myndbandinu nýja uppfinningu, vélmenni sem flýgur eins og fugl, mögulega flugvél framtíðarinnar. Á síðunni er líka hægt að skoða og hlusta á frábært myndband þar sem ungt par í bíl pantar sér kaffi með því að rappa. Einnig er skemmtileg myndasería af fuglum að ráðast á fólk, fullt af myndum af ógeðskökum (fínar hugmyndir fyrir hrekkjavökuna sem er jú framundan) og margt fleira.