Muammar Gaddafi
Muammar Gaddafi
Muammar Gaddafi, áður einræðisherra í Líbíu, hefur sent frá sér hljóðupptöku þar sem hann hvetur Líbíumenn til að fara út á göturnar og sýna nýjum valdhöfum borgaralega óhlýðni.

Muammar Gaddafi, áður einræðisherra í Líbíu, hefur sent frá sér hljóðupptöku þar sem hann hvetur Líbíumenn til að fara út á göturnar og sýna nýjum valdhöfum borgaralega óhlýðni.

Ávarpið var sent út í Al-Rai- sjónvarpsstöðinni, sem hefur orðið einskonar málgagn Gaddafis eftir að hann flúði frá Trípólí. Gaddafi, sem fer huldu höfði, segir að þjóðarráð uppreisnarmanna sé ekki lögmætur valdhafi í landinu.

kjon@mbl.is