Flotinn Díselbílar eru orðnir ráðandi í starfsemi bílaleiga á Íslandi, þar á meðal bílaleigu Akureyrar sem er alls með um 2.200 bíl í útgerð sinni. Umhverfissjónarmið eru ráðandi í rekstrinum.
Flotinn Díselbílar eru orðnir ráðandi í starfsemi bílaleiga á Íslandi, þar á meðal bílaleigu Akureyrar sem er alls með um 2.200 bíl í útgerð sinni. Umhverfissjónarmið eru ráðandi í rekstrinum. — Ljósm/Karl Eskil Pálss
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Ef kílómetramælirinn er kominn upp í 70 þúsund fyllist viðskiptavinurinn tortryggni, segir Steingrímur Birgisson hjá Bílaleigu Akureyrar. Umhverfisþátturinn vaxandi í starfseminni.

Bílaleiga Akureyrar er stærsta bílaleiga landsins með um 2.200 bíla í rekstri yfir sumartímann. Steingrímur Birgisson forstjóri segir að þessi fjöldi hafi verið svipaður undanfarin tvö til þrjú ár. „Vertíðin í ár var í raun aðeins tveir mánuðir, en venjulega eru mánuðirnir þrír. Júní var hins vegar frekar dapur en júlí og ágúst voru ágætir,“ segir Steingrímur.

„Bílaflotinn okkar er fjölbreyttur, allt frá litlum fólksbílum upp í lúxusbíla, enda er góð þjónusta og sveigjanleiki okkar aðalsmerki. Eftir hrun fjölgaði einyrkjum í ferðaþjónustu til mikilla muna, margar litlar bílaleigur hafa til dæmis á boðstólum ódýra bíla og þar með eru ákveðin gæði sett til hliðar. Þetta getur verið stórhættulegt fyrir ferðaþjónustuna og skaðað hana verulega. Sumir erlendir ferðamenn gera sér grein fyrir þessu, greiða minna og fá þess vegna ekki eins góða bíla. Aðrir átta sig ekki á stöðunni og telja sig oft á tíðum svikna. Þegar heim er komið segja þeir frá óánægju sinni á bloggsíðum og öðrum miðlum, sem auðvitað bitnar á allri ferðaþjónustunni.“

Múlakvísl var mikið átak

Mjög reyndi á þjónustu bílaleiga er vegurinn yfir Múlakvísl rofnaði um miðjan júlí sem sagt á háannatíma. Steingrímur segir að strax hafi verið ákveðið að opna tvær útleigustöðvar eftir að vegurinn rofnaði.

„Við settum upp stöðvar á Kirkjubæjarklaustri og í Hrauneyjum og buðum upp á rútuferðir á milli þessara staða um Fjallabaksleið nyrðri tvisvar á dag. Þannig gátu okkar viðskiptavinir skilað bílunum á öðrum hvorum staðnum, tekið rútuna og fengið nýjan bíl þegar komið var á leiðarenda. Mikið var í húfi fyrir okkur og ekki síður viðskiptavinina. Þetta tókst með samstilltu átaki allra starfsmanna fyrirtækisins. Ég er viss um að margir þeirra útlendinga sem lentu í þessu eiga eftir að koma aftur til Íslands, enda voru þeir mjög hrifnir af þjónustunni og hvernig brugðist var við á þessum tímapunkti. Þetta kostaði vissulega sitt, en mun örugglega skila sér í framtíðinni.“

Mælirinn má ekki sýna of mikið

Steingrímur segir þá breytingu helsta hafa orðið í starfsumhverfi bílaleiga á síðustu misserum að í dag noti bílarnir yfirleitt dísil. Hlutfallið er um 70% á móti 30% bensínbíla. Bílarnir megi sömuleiðis ekki vera of mikið eknir.

„Ef kílómetramælirinn er kominn upp í 70 þúsund fyllist viðskiptavinurinn tortryggni, þannig að við kappkostum að halda bílaflotanum sem yngstum. Það eru ekki mörg ár síðan bílaleigur keyptu ódýra og hráa bíla, en í dag eru þeir mun betur útbúnir. Við tökum mikið tillit til eyðslu eldsneytis og kolefnislosunar þegar ákvörðun er tekin um bílakaup. Bílaleiga Akureyrar er eina bílaleiga landsins sem er bæði með gæða- og umhverfisvottun. Markmið okkar er meðal annars að draga árlega úr kolefnislosun. Krafa viðskiptavina hefur í raun alltaf verið einföld, að fá traustan og góðan bíl og við reynum eftir megni að uppfylla þær óskir.“

Allir leggjast á eitt

Steingrímur fullyrðir að stærstu bílaleigur landsins bjóði upp á betri þjónustu en víðast hvar annars staðar.

„Já, það leyfi ég mér að gera. Víða erlendis eru bílaleigur með „heilagan afgreiðslutíma“, en hérna leggjast allir á eitt að bjarga hlutunum ef eitthvað fer úrskeiðis. Til dæmis ef flugi til landsins seinkar er einfaldlega beðið, slíkt gerist ekki oft erlendis. Reyndar er opið nánast allan sólarhringinn á Keflavíkurflugvelli yfir háannatímann. Þjónustustig bílaleiga og reyndar ferðaþjónustunnar í heild sinni er mjög hátt hérna á Íslandi. Þess vegna er einmitt svo skemmtilegt og gefandi að starfa í greininni,“ segir Steingrímur Birgisson, forstjóri Bílaleigu Akureyrar.

karlesp@simnet.is