Stjórnendur Íslandspósts og Brimborgar skrifuðu nýverið undir samning um kaup Íslandspósts á fimmtán nýjum Ford Transit-sendibílum. Bílarnir eru af ýmsum gerðum og hafa verið afhentir fyrirtækinu á síðustu mánuðum. Þeir síðustu eru væntanlegir til Íslandspósts í haust, en með þessu er fyrirtækið að endurnýja bílaflota sinn.
Ágústa Hrund Steinarsdóttir, forstöðumaður markaðsdeildar Íslandspósts, segir að með þessum kaupum sé Íslandspóstur aðallega að endurnýja bíla sína á höfuðborgarsvæðinu. Einnig fara bílar til Keflavíkur, á Akranes og á Sauðárkrók. Af aldrifsbílunum fer annar í Stykkishólm og verður notaður til póstflutninga á Snæfellsnesi en hinn á Ísafjörð þar sem drifgeta bílsins mun áreiðanlega nýtast vel.
sbs@mbl.is