Hulda Hlín Magnúsdóttir opnar sýningu á verkum sínum í Listasal Mosfellsbæjar í dag kl. 16.00.
Hulda Hlín Magnúsdóttir opnar sýningu á verkum sínum í Listasal Mosfellsbæjar í dag kl. 16.00. Hún nefnir sýninguna Litir – krómatískir töfrar / Color – chromatic magic, en á henni eru litir sem hafa verið meginviðfangsefni í olíuverkum og teikningum þar sem fjöllum, klettum og persónum bregður fyrir í litskrúðugum expressívum búningi.
Hulda Hlín er útskrifuð í málaralist frá Listaakademíu Ítalíu í Róm (Accademia di Belle Arti) og hefur haldið einka- og samsýningar hérlendis og erlendis.
Sýningin stendur til 4. nóvember.