Akureyrska rokksveitin geðþekka 200.000 naglbítar mun snúa aftur á heimaslóðir í febrúar 2012 og leika í Hofi.
Akureyrska rokksveitin geðþekka 200.000 naglbítar mun snúa aftur á heimaslóðir í febrúar 2012 og leika í Hofi. Að sögn Vilhelms Antons Jónssonar, leiðtoga sveitarinnar, er stefnt að því að frumflytja fjögur ný lög á tónleikunum og er eitt þeirra þegar komið niður á blað.