Atgangur Bílar hafa áhrif á líf okkar með ýmsu mót. Þegar snjórinn fellur hefst mikill atgangur á dekkjaverkstæðum. Það er mikið að gera í mjöllinni, eins og sjá mátti á verkstæði Hölds á Akureyri sl. miðvikudag.
Atgangur Bílar hafa áhrif á líf okkar með ýmsu mót. Þegar snjórinn fellur hefst mikill atgangur á dekkjaverkstæðum. Það er mikið að gera í mjöllinni, eins og sjá mátti á verkstæði Hölds á Akureyri sl. miðvikudag. — Morgunblaðið/Skapti
Bílamenningin er að breytast. Einu gildir hvað átta horft er til; áherslan er hvarvetna sú að þróa og smíða bíla sem eru minni, ódýrari, nettari og menga minna en þeir sem áður hafa runnið af færiböndum bílaverksmiðja um veröld víða.

Bílamenningin er að breytast. Einu gildir hvað átta horft er til; áherslan er hvarvetna sú að þróa og smíða bíla sem eru minni, ódýrari, nettari og menga minna en þeir sem áður hafa runnið af færiböndum bílaverksmiðja um veröld víða. Útblástur bíla á gróðurhúsalofti er orðinn sáralítill miðað við hvað var, enda er krafa dagsins sú. Með hverri nýrri árgerð og tegund bíla eru stórstígar framfarir í þessa veruna sem eru mjög athyglisverðar.

Á Íslandi eru bílar miklu meira en bara farartæki til að komast milli reita; frá A til B. Hérlendis eru þeir aflvaki skemmtilegrar menningar og sagna. Við þekkjum öll sögur af körlum sem bröskuðu með bíla og létu sér ekki allt fyrir brjóti brenna. Slíkir ævintýramenn eru nú á undanhaldi og aðrar persónur meira áberandi á leiksviðinu. Ung kona, Sif Björk Birgisdóttir, sem opnaði fyrir fáeinum dögum bílasölu við Klettháls í Reykjavík, segir að fyrst sé að læra hverjar séu helstu tegundir bíla og hvaða atriði ráði verðmyndun. Mestu skipti þó samskiptin við fólkið og að skapa við það tengsl sem geti leitt til viðskipta.

„Muna eftir því hvenær tiltekinn viðskiptavinur kom við, hvernig bíl hann var að leita eftir og slá svo á þráðinn og færa viðkomandi þær góðu fréttir að nú sé draumabíllinn kominn og bíði eftir nýjum eiganda,“ segir Sif.

Svo eru það stórlaxarnir. Steingrímur Birgisson rekur Bílaleigu Akureyrar og er með 2.200 bíla í útgerð yfir sumartímann. Hann segir áherslur í sínum ranni hafa breyst talsvert á síðustu misserum. „Við tökum mikið tillit til eyðslu eldsneytis og kolefnislosunar,“ útskýrir Steingrímur og greinir frá því að markmið í sinni starfsemi sé jafnt og þétt dregið úr kolefnislosun.

Og veitir víst ekki af, nú þegar markmið stjórnvalda eru æ þyngri skattar á bíleigendur þar sem meginreglan er sú að þeir borga sem menga. En þá gleymist að í strjálbýlu landi á norðurhjaranum þar sem allra veðra er von skiptir Íslendinga öllu að vera á traustum og góðum bílum. Auknar álögur mega aldrei vera á kostnað öryggis, en eins og málum virðist í dag háttað virðist stundum að slíku stefnt.

sbs@mbl.is