Þessir jeppar fengu strax góðar viðtökur þegar þeir komu á markaðinn hér árið 1997. Sönnuðu fljótt hve vel þeir henta aðstæðum á Íslandi og nú fjórtán árum síðar eru 95% þeirra bíla sem skráðir hafa verið út á göturnar enn í umferð,“ segir Gunnar Gunnarsson framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Bernharðs hf.
Honda CRV eru bílar sem hafa reynst Íslendingum afar vel. Salan hefur á öllum tímum verið góð, ekki síst á árunum 2005 og 2006 en nærri lætur að markaðurinn hafi þá tekið við um 500 bílum hvort árið um sig. Alls eru í dag um 3.500 CRV-bílar á götunum hér á landi og enn stækkar flotinn. Í ár hafa selst 110 bílar; það er á samdráttarskeiði í bílaviðskiptum þótt nú sé lítið eitt að lifna yfir.
Vörugjöld verði 41%
Vörugjöld við innflutning bíla stjórnast í dag af útblæstri á gróðurhúsalofti. Þumalputtareglan er þá sú að eftir því sem bíllinn mengar minna eru álögurnar lægri. Breytingar í þessa átt voru gerðar um síðustu áramót þegar vörugjöld á Hondu CRV fóru í 36% og fara um komandi áramót í 41% – sem jafngildir 13,8% hækkun. Í dag er algengt verð á bílum þessarar gerðar 5,5 milljónir kr. en mun með vörugjaldabreytingum í byrjun árs 2012 hækka um að jafnaði 200 þúsund kr, sem er 4% verðhækkun. Vörugjöldin hækka svo enn frekar þegar árið 2013 gengur í garð.„Það hjálpar hvorki bílaumboðunum né fólkinu í landinu að þyngja álögur á bílainnflutning enn frekar, nú þegar við erum að koma okkur út úr mesta samdráttarskeiði greinarinnar. Vörugjaldahækkunin er vanhugsuð. Einnig er mikilvægt að gera sem flestum kleift að vera á sæmilega stórum og traustum bílum, þannig að fólk sé öruggt úti á vegunum,“ segir Gunnar.
Tankurinn dugar í mánuð
Bernhard er einnig með umboð fyrir Peugeot á Íslandi. Bílar þeirrar gerðar njóta vaxandi vinsælda, enda er innkaupsverðið hagstætt og eyðslan sáralítil.„Díselbílar í 508 týpunni eyða sáralitlu og hægt er að fara 1.800 kílómetra á tankinum það er hringinn í kringum landið og til viðbótar svo héðan úr Reykjavík og norður á Akureyri. Menn hafa talað um að í stað þess að fylla á tankinn einu sinni í viku dugi að fara mánaðarlega og sá mismunur á eldsneytiskostnaði getur í einhverjum tilvikum samsvarað til dæmis því sem greitt er í mánaðarlega afborganir af bílaláni,“ útskýrir Gunnar sem telur sparneytinn Peugeot 508 betri kost en aðra sambærilega sem knúnir eru metani. Stöðvar með slíku eldsneyti eru aðeins tvær á landinu öllu, það er í Hafnarfirði og Reykjavík, en díselstöðvar eru hins vegar í nánast hverri byggð. sbs@mbl.is