— Reuters
Breski söngvarinn sir Cliff Richard syngur eftir að hafa tekið við Þýsku sjálfbærniverðlaununum sem afhent voru í fjórða skipti í Düsseldorf um helgina.

Breski söngvarinn sir Cliff Richard syngur eftir að hafa tekið við Þýsku sjálfbærniverðlaununum sem afhent voru í fjórða skipti í Düsseldorf um helgina. Verðlaunin eru veitt fyrirtækjum sem starfa með sjálfbærum hætti og einstaklingum sem hafa beitt sér fyrir sjálfbærri þróun.

Cliff Richard er orðinn 71 árs og áætlað er að hann hafi selt alls 250 milljónir platna á 53 ára söngferli sínum.