[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Dagný Skúladóttir, landsliðskona í handknattleik, fékk heldur betur glæsilegar móttökur í gærmorgun þegar hún mætti til vinnu á ný í þjónustuveri Icelandair.

Dagný Skúladóttir, landsliðskona í handknattleik, fékk heldur betur glæsilegar móttökur í gærmorgun þegar hún mætti til vinnu á ný í þjónustuveri Icelandair. Dagný var í fríi frá störfum þar vegna þátttöku landsliðsins í lokakeppni heimsmeistaramótsins í Brasilíu. Starfsfólkið var allt klætt í landsliðsbúninga Íslands, vinnubás Dagnýjar var þakinn íþróttasíðum dagblaðanna þar sem fjallað var um HM og hún fékk veglega köku með mynd af sjálfri sér. Dagný var í stóru hlutverki með landsliðinu á HM og skoraði m.a. átta mörk í sigurleiknum gegn Kína í lokaumferð riðlakeppninnar .