[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Ekki verður annað sagt en hugmyndir um hártísku og greiðslur hafi verið teknar skrefi lengri á hársýningu í Seúl á dögunum. Það hefur sennilega ekki verið sérlega þægilegt eða auðvelt að bera sumt af því skrauti sem þar sást á tískusýningapöllunum.

Ekki verður annað sagt en hugmyndir um hártísku og greiðslur hafi verið teknar skrefi lengri á hársýningu í Seúl á dögunum.

Það hefur sennilega ekki verið sérlega þægilegt eða auðvelt að bera sumt af því skrauti sem þar sást á tískusýningapöllunum. Rúllurnar virðast hafa gleymst í einu módelinu og stutt í að marglitur haugurinn beri hana yfirliði. Svo sýnist sem önnur hafi brugðið sér í hlutverk trés og beri krónu þess á höfðinu. Sú þriðja er skrýdd því er líkist helst ægimiklum fuglsham. Svona er hægt að leika sér að ýmiss konar útfærslum í hári og klæðnaði. Þessar eru sannarlega skrautlegar og skemmtilegar fyrir augað. En um leið helst til íburðarmiklar og óþægilegar til lengdar. Það gæti þó verið flott að skreyta sig með nokkrum fjöðrum yfir hátíðarnar þegar maður vill skarta sínu fegursta.