Hress Hún Britney skapar góða stemningu á dansgólfinu.
Hress Hún Britney skapar góða stemningu á dansgólfinu. — Reuters
Þá er komið jólafrí hjá nemendum landsins eftir stranga prófatörn. Margir ætla örugglega að nýta helgina í jólastúss og kíkja svo kannski út um kvöldið. Víða um bæ eru haldnar próflokaskemmtanir ýmiss konar þessa dagana.

Þá er komið jólafrí hjá nemendum landsins eftir stranga prófatörn. Margir ætla örugglega að nýta helgina í jólastúss og kíkja svo kannski út um kvöldið.

Víða um bæ eru haldnar próflokaskemmtanir ýmiss konar þessa dagana. Ein slík verður á Úrillu górillunni annað kvöld. Þar mun hljómsveitin Span halda uppi stuðinu. Span er ballsveit sem leikur tökulög úr ýmsum áttum, bæði gömul og ný. Meðal þeirra hljómsveita sem Span leikur lög með eru Abba, Bon Jovi, Britney Spears, Dusty Springfield, Trúbrot, Janis Joplin og Kings of Leon. Ættu því flestir að geta fundið lag við sitt hæfi til að tæta upp dansgólfið við. Um að gera að liðka sig dálítið eftir allan lesturinn.