Lífrænt ræktað bygg og heilhveiti frá Vallanesi er uppistaðan í nýrri vöfflu- og lummublöndu frá Móður jörð. Blandan ætti að einfalda þá aðgerð að henda í hollar lummur eða vöfflur þegar gesti ber að garði.

Lífrænt ræktað bygg og heilhveiti frá Vallanesi er uppistaðan í nýrri vöfflu- og lummublöndu frá Móður jörð. Blandan ætti að einfalda þá aðgerð að henda í hollar lummur eða vöfflur þegar gesti ber að garði. Innihaldi pokans er hellt í skál og um það bil 4 dl af mjólk ásamt einu eggi bætt við. Egginu má sleppa og einnig má skipta mjólk út fyrir AB-mjólk eða vatn. Úr einum poka ættu að fást 20 lummur eða níu vöfflur.

elal@simnet.is