Jón Svavar Jósefsson óperusöngvari og jazzkvartettinn Ferlíki leika jazz- og dægurlög úr ýmsum áttum á Café Haiti næstkomandi laugardag.
Jón Svavar Jósefsson óperusöngvari og jazzkvartettinn Ferlíki leika jazz- og dægurlög úr ýmsum áttum á Café Haiti næstkomandi laugardag.
Ferlíki kemur fram í nokkuð breyttri mynd þar sem trommuleikarinn Magnús Tryggvason Eliassen á ekki heimangengt, en í hans stað kemur trompetleikarinn Ragnhildur Gunnarsdóttir. Aðrir Ferlíkismenn verða á sínum stað; Ásgrímur Angantýsson leikur á píanó, Jón Ómar Árnason á gítar og Þórður Högnason á bassa. Skammt er síðan Jón Svavar tróð upp með Ferlíki á Rósenberg.
Tónleikarnir hefjast kl. 21.