Hjálparstarf Jónas Þórir Þórisson og Jóhann G. Jóhannsson.
Hjálparstarf Jónas Þórir Þórisson og Jóhann G. Jóhannsson. — Morgunblaðið/Golli
Hjálparstarf kirkjunnar tók á miðvikudag við safndiski með þremur útgáfum af laginu Hjálpum þeim. Jóhann G. Jóhannsson, annar höfunda lagsins, afhenti diskinn. Lagið hefur aflað mikilla fjármuna til neyðarstarfs Hjálparstarfs kirkjunnar.
Hjálparstarf kirkjunnar tók á miðvikudag við safndiski með þremur útgáfum af laginu Hjálpum þeim. Jóhann G. Jóhannsson, annar höfunda lagsins, afhenti diskinn. Lagið hefur aflað mikilla fjármuna til neyðarstarfs Hjálparstarfs kirkjunnar. Það er von allra sem tengjast málinu að nú safnist vel fyrir neyðaraðstoð í A-Afríku. Um hana snýst einnig jólasöfnun Hjálparstarfsins enda þörfin mikil og ástand gríðarlega erfitt, segir á vef Hjálparstarfsins.