Landon Donovan
Landon Donovan
Enska knattspyrnufélagið Everton komst í gærkvöld að samkomulagi við Los Angeles Galaxy og bandarísku MLS-deildina um að fá bandaríska landsliðsmanninn Landon Donovan lánaðan í tvo mánuði.

Enska knattspyrnufélagið Everton komst í gærkvöld að samkomulagi við Los Angeles Galaxy og bandarísku MLS-deildina um að fá bandaríska landsliðsmanninn Landon Donovan lánaðan í tvo mánuði. Þetta verður í annað sinn sem Donovan kemur til Everton í vetrarfríinu í bandarísku deildakeppninni. Hann verður að óbreyttu löglegur með liðinu gegn Bolton 4. janúar og getur spilað framyfir leik Everton gegn nágrönnunum í Liverpool 25. febrúar. vs@mbl.is