Átján hundruð ökumenn voru stöðvaðir á höfuðborgarsvæðinu um helgina í sérstöku umferðareftirliti sem lögreglan heldur nú úti í umdæminu.
Átján hundruð ökumenn voru stöðvaðir á höfuðborgarsvæðinu um helgina í sérstöku umferðareftirliti sem lögreglan heldur nú úti í umdæminu. Fimm ökumenn reyndust ölvaðir við stýrið og einn var undir áhrifum fíkniefna og eiga þeir allir ökuleyfissviptingu yfir höfði sér.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.
Þar segir að 11 til viðbótar hafi verið gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir leyfilegum mörkum.