20. desember 1930 Ríkisútvarpið tók formlega til starfa. „Það hefur varla verið beðið eftir öðru í meiri eftirvæntingu og með meiri vonarhug hér á landi heldur en þessari útvarpsstöð,“ sagði Helgi Hjörvar, formaður útvarpsráðs, í ávarpi...
20. desember 1930
Ríkisútvarpið tók formlega til starfa. „Það hefur varla verið beðið eftir öðru í meiri eftirvæntingu og með meiri vonarhug hér á landi heldur en þessari útvarpsstöð,“ sagði Helgi Hjörvar, formaður útvarpsráðs, í ávarpi sínu. Útvarpað var einkum á kvöldin, um þrjá tíma í senn. Fyrsti útvarpsstjórinn var Jónas Þorbergsson. Skráðir notendur töldust 449.
20. desember 1930
Landspítalinn var tekinn í notkun, án viðhafnar. Fyrsta daginn komu þrír sjúklingar á handlækningadeildina. Í spítalanum voru 120 sjúkrarúm og í upphafi voru læknarnir átta.
20. desember 1975
Kröflueldar hófust með eldgosi í Leirhnjúki. Þetta gos stóð fram í febrúar 1976 en goshrinurnar urðu níu, sú síðasta 1984.
20. desember 1983
Kvótakerfi á fiskveiðar var samþykkt á Alþingi. „Litlu munaði að frumvarpið yrði fellt og ríkisstjórninni þar með velt úr sessi,“ sagði Tíminn. Kerfið tók gildi 1. janúar 1984.
20. desember 1992
Stórviðri skall á suðvestanlands upp úr miðnætti. Á sjöunda hundrað manns leituðu skjóls í Fríkirkjunni í Reykjavík. Snjóflóð féll á þjónustumiðstöð á skíðasvæði í Hamragili við Hengil.Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.