Virkja Eftir að fjármagna stækkun.
Virkja Eftir að fjármagna stækkun.
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is HS Orka getur ekki gengið til samninga um fjármögnun stækkunar Reykjanesvirkjunar eða hafist handa við virkjun fyrr en gengið hefur verið frá fyrirvörum í samningum við Norðurál um orkusölu til álvers í Helguvík.

Helgi Bjarnason

helgi@mbl.is

HS Orka getur ekki gengið til samninga um fjármögnun stækkunar Reykjanesvirkjunar eða hafist handa við virkjun fyrr en gengið hefur verið frá fyrirvörum í samningum við Norðurál um orkusölu til álvers í Helguvík.

HS Orka og Orkuveita Reykjavíkur skuldbundu sig til að útvega meginhluta orkunnar sem álver Norðuráls í Helguvík þarf. Í samningunum eru fyrirvarar um að öll leyfi fáist til að virkja, að tryggð verði lágmarksarðsemi framkvæmdar og fjármögnun takist. Þótt orkusamningur HS Orku og Norðuráls standi þurfa fyrirtækin að taka upp viðræður um framkvæmdina. Síðan þarf að fjármagna virkjunina.

Norðurál hefur lýst því yfir að hægt verði að halda áfram framkvæmdum við álverið þegar orkuöflun til fyrsta áfanga hafi verið tryggð. Fyrirtækið kaupir nú þegar orku frá Hellisheiðarvirkjun sem ætluð er fyrir Helguvíkurverkefnið en ganga þarf frá samningum um stækkun Reykjanesvirkjunar og fleiri mál til að það náist. 2