.
.
Raunávöxtun á óverðtryggðum innlánsreikningum var almennt neikvæð á síðasta ári. Verðbólga er núna 5,3% en vextir á óverðtryggðum reikningum ná yfirleitt ekki 4%.

Raunávöxtun á óverðtryggðum innlánsreikningum var almennt neikvæð á síðasta ári. Verðbólga er núna 5,3% en vextir á óverðtryggðum reikningum ná yfirleitt ekki 4%. Raunávöxtun af verðtryggðum reikningum er lítil þegar tekið er tillit til þess að greiða þarf 20% fjármagnstekjuskatt af vaxtatekjum og að verðbætur eru einnig skattlagðar. Þrátt fyrir að 100 þúsund króna frítekjumark sé af vaxtatekjum þurfa mörg börn að greiða fjármagnstekjuskatt vegna þess að þau eru ekki skattlögð sem einstaklingar og þurfa því að deila frítekjumarki með foreldrum sínum. 4