Fischer Bobby Fischer skákmeistari, Miyoko Watai, eiginkona hans, og t.v. Sæmundur Pálsson, vinur hans.
Fischer Bobby Fischer skákmeistari, Miyoko Watai, eiginkona hans, og t.v. Sæmundur Pálsson, vinur hans. — Morgunblaðið/Golli
Egill Ólafsson egol@mbl.is Skiptum á dánarbúi Bobbys Fischers, fyrrverandi heimsmeistara í skák, er lokið. Eignir búsins reyndust vera 475 milljónir króna.

Egill Ólafsson

egol@mbl.is

Skiptum á dánarbúi Bobbys Fischers, fyrrverandi heimsmeistara í skák, er lokið. Eignir búsins reyndust vera 475 milljónir króna. Eignirnar renna allar til Myoko Watai, eiginkonu Fischers, en dómstólar hér á landi komust að þeirri niðurstöðu að hún og Fischer hefðu verið gift og hún væri því lögmætur erfingi.

Fischer lést 17. janúar 2008, en hann bjó á Íslandi síðustu þrjú ár ævi sinnar og var íslenskur ríkisborgari. Eftir að hann lést gerðu þrír aðilar kröfu um arf eftir hann, en það voru Watai, eiginkona hans, filippseyska stúlkan Jinky Young, sem hélt því fram að hún væri dóttir Fischers, og tveir systursynir Fischers. DNA-rannsókn leiddi í ljós að stúlkan var ekki dóttir Fischers.

Watai tókst hins vegar að færa sönnur fyrir því að hún og Fischer hefðu gifst og að dómsmálaráðherra Japans hefði árið 2005 staðfest hjúskap þeirra. Í réttarhöldunum kom fram að þau hefðu kynnst fyrst árið 1973 og tekið upp samband árið 1992.

Fischer varð heimsmeistari í skák þegar hann sigraði sovéska stórmeistarann Boris Spassky í einvígi í Reykjavík árið 1972. Þeir háðu aftur einvígi í Júgóslavíu árið 1992 og fyrir sigur í því fékk Fischer góð sigurlaun.