Tónleikar Frá tónleikahátíðinni Sláturtíð síðastliðið haust.
Tónleikar Frá tónleikahátíðinni Sláturtíð síðastliðið haust.
Akusmonium tónleikar, tónlist fyrir hátalara, verða haldnir í dag kl 16:00 í sal Tónverkamiðstöðvar Íslands, Skúlatúni 2, efstu hæð. Þar mun fjölbreytt samansafn hátalara flytja nýja íslenska tónlist eftir meðlimi S.L.Á.T.U.R.-samtakanna.

Akusmonium tónleikar, tónlist fyrir hátalara, verða haldnir í dag kl 16:00 í sal Tónverkamiðstöðvar Íslands, Skúlatúni 2, efstu hæð. Þar mun fjölbreytt samansafn hátalara flytja nýja íslenska tónlist eftir meðlimi S.L.Á.T.U.R.-samtakanna. En skammstöfunin stendur fyrir Samtök listrænt ágengra tónsmiða umhverfis Reykjavík.

Hátalararnir sem koma fram á tónleikunum eru mjög misjafnir að gerð. Þeir hafa sumir komið fram áður á tónleikum og leikið ýmsa tónlist eftir ýmsa höfunda, bæði í einleikshlutverki og í meðleik.

Á Akusmonium tónleikum S.L.Á.T.U.R. munu heyrast ný verk sem eru samin sérstaklega með ákveðin hátalaraeintök í huga. Einnig verða sérstakar samsetningar hátalara, hljómbreyttir hátalarar og hátalarar í nýju hlutverki og samhengi.

S.L.Á.T.U.R.-samtökin hafa verið leiðandi í nýsköpun tónlistar allt frá upphafi og verið sameiginlegur vettvangur frumlegustu tónskálda Íslands. Starfsemin er fjölþætt og má þar nefna tónsmíðaviku um sumarsólstöður, tónlistarhátíðina Sláturtíð, nýárstónleika og hin sívinsælu Sláturdúndur. Hún er alþjóðleg tónlistarhátíð og uppskeruhátíð samtakanna. En hátíðin var haldin í þriðja sinn í Reykjavík síðastliðið haust. Heimasíða S.L.Á.T.U.R. er www.slatur.is og þar má nálgast allar frekari upplýsingar um samtökin.

Áhugamenn um nýja tækni, raftónlist, hljóðlist og nýmæli eru sérstaklega hvattir til að mæta. En ókeypis er á tónleikana.