Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra Ég var ein af mörgum sem keyptu miða í happdrætti Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra sem var auglýst mikið og var dregið 24. des. 2011 en ég hef ekki séð neina vinningaskrá í blöðunum ennþá.
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
Ég var ein af mörgum sem keyptu miða í happdrætti Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra sem var auglýst mikið og var dregið 24. des. 2011 en ég hef ekki séð neina vinningaskrá í blöðunum ennþá. Þegar ég hef reynt að hringja í símann sem gefinn er upp á happdrættismiðanum svarar enginn. Þetta er ekki heppileg leið til að fá fólk til að styrkja þetta félag.
Guðný Jóhannsdóttir.
Svarað í síma 5691100 frá 10-12 velvakandi@mbl.is