Þrettándatónleikar Hinsegin kórsins verða haldnir í Norræna húsinu í dag og hefjast kl. 16.00. Kórinn var stofnaður sl. haust og hefur komið fram við ýmis tilefni, en þetta verða fyrstu sjálfstæðu tónleikar hans.
Þrettándatónleikar Hinsegin kórsins verða haldnir í Norræna húsinu í dag og hefjast kl. 16.00. Kórinn var stofnaður sl. haust og hefur komið fram við ýmis tilefni, en þetta verða fyrstu sjálfstæðu tónleikar hans. Allur ágóði af tónleikunum rennur í ferðasjóð vegna fyrirhugaðrar ferðar kórsins á Gay Pride í Færeyjum í júlí 2012. Á efnisskránni er allt frá klassískum íslenskum kórverkum til nútíma dægur- og popplaga.