Hjördís Árnadóttir
Hjördís Árnadóttir
Eftir Hjördísi Árnadóttur: "Innhverf íhugun er aldagömul vedísk íhugunartækni frá Indlandi, einföld og náttúruleg, sem Maharishi Mahesh Yogi hefur innleitt á Vesturlöndum"

Öll erum við meðvituð um mikilvægi þess að hugsa vel um líkamlega heilsu okkar. Allt sem við gerum fyrir líkamann hefur áhrif á hugann. Þannig stuðlum við ómeðvitað að góðri andlegri líðan þegar við ræktum líkamann. En það er líka hægt að stuðla að betri líkamlegri líðan með því að rækta hugann sérstaklega.

Í gegnum árin hef ég ávallt haft eitthvað fyrir stafni sem eflir sálarlíf mitt, en ég hef samt alltaf þurft að leita lengra, að einhverju sem gerir mig „sadda“ ef svo má að orði komast. Þannig hef ég verið í stöðugri leit að andlegri næringu. Ég hef fundið ýmislegt og tileinkað mér, en svo eftir einhvern tíma þarf ég alltaf að leita lengra. Ég hef alltaf verið í góðri tengingu við minn Guð og engla alheimsins, en það hefur samt alltaf vantað eitthvað „pínulítið“ upp á.

Ég kynntist innhverfri íhugun

Fyrir rúmum tveim árum varð ég þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast innhverfri íhugun (e. transcendental meditation). Ég hafði reyndar farið á kynningu á IÍ fyrir um 15 árum, en fannst þá kostnaðurinn við að læra tæknina of mikill. Ég heyrði svo af því að bandaríski leikstjórinn David Lynch, hefði komið til Íslands í kjölfar efnahagshrunsins, gagngert til þess að kynna Íslendingum þessa ævafornu tækni fyrir. Í troðfullu Háskólabíói sagði hann frá reynslu sinni af iðkun IÍ sl. 30 ár. Hann sagðist hafa trú á því að Íslendingar væru opnir fyrir andlegum þroska og að hann vildi leggja sitt af mörkum til þess að sem flestir Íslendingar lærðu og í framhaldinu stunduðu IÍ.

En hvað er innhverf íhugun?

Hún er aldagömul vedísk íhugunartækni frá Indlandi, einföld og náttúruleg, sem Maharishi Mahesh Yogi hefur innleitt á Vesturlöndum (Bítlarnir lærðu af honum). Tæknin gengur út á að iðka íhugun í 20 mínútur kvölds og morgna í stól með lokuð augu. Það er einfalt að læra IÍ, auðvelt að iðka hana og iðkunin felur ekki í sér neins konar heimspeki, hegðun eða lífsvenjur. Í dag iðka rúmlega sex milljónir manna, á öllum aldri, um allan heim, af ólíkum uppruna og með ólíkan menningarlegan og trúarlegan bakgrunn, innhverfa íhugun.

Það sem heillar mig mest við þessa tækni er einfaldleikinn, það þarf ekki að fara í sérstök föt, gera sérstakar æfingar, vera í sérstöku herbergi, andrúmslofti o.s.frv. Það þarf bara að finna sér næði, setjast niður, loka augunum og hugsa möntruna sína. Á námskeiðinu fær maður úthlutaða möntru sem maður á bara fyrir sig. Námskeiðið gengur út á að kenna manni tæknina og hvað það er sem gerist þegar maður nær tökum á henni. Meðan á iðkun stendur kyrrist hugurinn smám saman þar til hljóðasta ástandi er náð, þ.e. „tærri vitund“ sem lýsa má sem sviði allra möguleika hugans. Í þessu ástandi starfar heilinn á einstaklega samræmdan hátt á sama tíma og líkaminn öðlast djúpa hvíld og losar streitu.

Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að alheimurinn sé ein heild og allt sem í honum er tengist með einum eða öðrum hætti og þess vegna skipti máli hvað við segjum, gerum og hugsum. Innhverf íhugun hefur styrkt mig í þessari trú. Meira en 600 rannsóknir hafa verið gerðar við 250 háskóla og rannsóknarstofnanir í 33 löndum sem staðfesta áhrif innhverfrar íhugunar á huga, líkama, hegðun og samfélag.

Þegar innhverf íhugun er iðkuð af hópi fólks (1% samfélags) framkallar hún samstillingaráhrif í samfélaginu sem hafa verið sannreynd með rannsóknum og felast í almennum framförum sem og fækkun neikvæðra þátta á borð við slys, glæpi og ofbeldi. Samstillt þjóðarvitund mun þannig á eðlilegan hátt valda miklum breytingum í átt til jákvæðni, velmegunar og framfara á öllum sviðum lífsins.

Í þann tíma sem ég hef iðkað IÍ hef ég fundið veruleg jákvæð áhrif bæði á andlega og líkamlega heilsu mína. Ég hef lengst af valið mér störf sem eru afar krefjandi. Álagið er oft það mikið að ég hef fengið einkenni kulnunar (e. burnout). Þá hef ég þurft að leggjast í híði og vinda ofan af mér. Í dag fer ég afsíðis tvisvar á dag, hvar sem ég er stödd, hugleiði í 20 mín. og er ný manneskja á eftir.

Sem þakklæti fyrir það sem innhverf íhugun hefur gefið mér, vil ég hvetja alla sem vilja bæta líf sitt á einfaldan og náttúrulegan hátt til að kynna sér málið nánar en nánari upplýsingar um IÍ má m.a. finna hjá ihugun.is.

Höfundur er félagsmálastjóri og áhugamaður um mannrækt.

Höf.: Hjördísi Árnadóttur