Undirskriftasöfnun er hafin á vefnum egmotmaeli.is vegna niðurskurðar í heilbrigðismálum. Þar er mótmælt niðurskurði á sama tíma og unnið er að undirbúningi hátæknisjúkrahúss í Reykjavík.

Undirskriftasöfnun er hafin á vefnum egmotmaeli.is vegna niðurskurðar í heilbrigðismálum.

Þar er mótmælt niðurskurði á sama tíma og unnið er að undirbúningi hátæknisjúkrahúss í Reykjavík. „Það er gott og gilt að byggja nýtt sjúkrahús og sjálfsagt löngu tímabært. En okkur sem stöndum að egmotmaeli.is finnst ekki tímabært að byggja nýtt sjúkrahús þegar við á sama tíma höfum ekki efni á að reka heilbrigðiskerfið eins og það er í dag. Að okkar mati er fjármagni ekki forgangsraðað rétt. Þegar öllu er á botninn hvolft kemur fjármagnið á endanum úr sama vasanum,“ segir í tilkynningu frá aðstandendum.