Vinsælt Halldóra Geirharðs í hlutverki sínu í Fanný og Alexander.
Vinsælt Halldóra Geirharðs í hlutverki sínu í Fanný og Alexander.
Gríðarlegur áhugi er á Fanný og Alexander sem Borgarleikhúsið frumsýndi í gær. Þegar er uppselt á allar sýningar fram í mars. Til að mæta hinni miklu eftirspurn hefur verið bætt við tveimur aukasýningum nú í janúar og febrúar auk sýninga í mars og...
Gríðarlegur áhugi er á Fanný og Alexander sem Borgarleikhúsið frumsýndi í gær. Þegar er uppselt á allar sýningar fram í mars. Til að mæta hinni miklu eftirspurn hefur verið bætt við tveimur aukasýningum nú í janúar og febrúar auk sýninga í mars og apríl. Ísland er ekki eina landið þar sem leikritið hefur notið hylli því verkið er þegar orðið vinsælasta leiksýning í sögu norska Þjóðleikhússins. Leikritið byggist á samnefndri kvikmynd eftir Ingmar Bergman.