Björt framtíð Guðmundur Steingrímsson og Heiða Helgadóttir kynntu nafnasamkeppnina í Norræna húsinu.
Björt framtíð Guðmundur Steingrímsson og Heiða Helgadóttir kynntu nafnasamkeppnina í Norræna húsinu. — Morgunblaðið/Golli
Björt framtíð – BF – er nafn á nýjum stjórnmálaflokki, sem Guðmundur Steingrímsson og Besti flokkurinn ásamt einstaklingum um land allt hafa unnið að því undanfarið að stofna. Efnt var til nafnasamkeppni.

Björt framtíð – BF – er nafn á nýjum stjórnmálaflokki, sem Guðmundur Steingrímsson og Besti flokkurinn ásamt einstaklingum um land allt hafa unnið að því undanfarið að stofna. Efnt var til nafnasamkeppni. Tæplega 2000 manns sendu inn tillögur.

Sex einstaklingar sendu inn þá tillögu sem varð fyrir valinu.

Björt framtíð er nafn sem nær vel utan um markmið hinna nýju stjórnmálasamtaka, að vinna að bjartri framtíð í stórum málum og smáum, segir í tilkynningu frá flokknum. „Undirstöður efnahagslífsins þurfa að vera stöðugar svo hægt sé að byggja upp góð og varanleg lífskjör um land allt,“ segir í tilkynningunni.

Auk þess vísar nafn samtakanna til þeirra viðfangsefna í umhverfismálum sem blasa við á heimsvísu og kalla á afgerandi viðbrögð.

Næst á dagskrá hjá Bjartri framtíð er að halda stofnfund þar sem einstaklingar munu skipta með sér verkum og reglur félagsins verða ákveðnar. Að því loknu hefst málefnavinna á grunni hugsjóna flokksins um græna, frjálslynda, alþjóðasinnaða, lýðræðislega og umfram allt bjarta framtíð, segir í tilkynningunni.