„Sagði upp sem framkvæmdastjóri Skífunnar til þess að sinna listinni. Ætli ég sé komin með rugluna?“ Svo mælir tónlistarkonan Lára Rúnars á fésbókarsíðu sinni.
„Sagði upp sem framkvæmdastjóri Skífunnar til þess að sinna listinni. Ætli ég sé komin með rugluna?“ Svo mælir tónlistarkonan Lára Rúnars á fésbókarsíðu sinni. Hún vinnur nú hörðum höndum að nýrri plötu og hefur greinilega ákveðið að ganga að fullu í faðm tónlistargyðjunnar. Viðbrögð vina hafa enda verið einkar jákvæð.