Sveitakeppni í Seattle. V-Enginn.
Norður | |
♠D8742 | |
♥Á8753 | |
♦-- | |
♣ÁD9 |
Vestur | Austur |
♠ÁG6 | ♠1093 |
♥KG10 | ♥-- |
♦ÁK10743 | ♦DG5 |
♣3 | ♣K1087652 |
Suður | |
♠K5 | |
♥D9642 | |
♦9862 | |
♣43 |
Á síðasta degi haustleikanna í Seattle tók landsliðsmaðurinn Joel Wooldridge upp ágæta hönd vesturs og opnaði á Standard-tígli. Norður doblaði, austur sagði 2♣ og suður 2♥. Joel doblaði nú til að sýna góða opnun og fyrir vikið frétti makker hans aldrei af sexlitnum í tígli og þagði það sem eftir lifði sagna: norður lyfti í 3♥, suður í 4♥ og Joel doblaði.
Útspilið var ♣3. Sagnhafi stakk upp ás, tók ♥Á og spilaði síðan spaða – tían frá austri (talning) og kóngur hjá sagnhafa. Framhaldið virðist óhjákvæmilegt: einspil vesturs í laufi gerir það að verkum að sagnhafi nær að fría spaðann og losa sig við laufhundinn heima. Joel sá hvað verða vildi og lét ♠G undir kónginn! Sagnhafi yppti öxlum, spilaði spaða að blindum, sexan frá Joel og ... áttan úr borði.