— Morgunblaðið/Eggert
Þessi ungi maður tók sig vel út þar sem hann stóð í gær í frekar litlausu umhverfi strætóskýlis með hárauðan blómvönd og beið eftir vagni, væntanlega til að flytja sig á fund einhvers sem honum þykir vænt um, því í gær var dagurinn sem tileinkaður er...
Þessi ungi maður tók sig vel út þar sem hann stóð í gær í frekar litlausu umhverfi strætóskýlis með hárauðan blómvönd og beið eftir vagni, væntanlega til að flytja sig á fund einhvers sem honum þykir vænt um, því í gær var dagurinn sem tileinkaður er ástföngnu fólki og kenndur við heilagan Valentínus. Vonandi að sem flestir hafi notað tækifærið og komið sínum heittelskuðu á óvart með dekri eða hverskonar velgjörningi.