Gerrit Schuil
Gerrit Schuil
Hinir reglulegu hádegistónleikar „Ljáðu okkur eyra“ verða haldnir í Fríkirkjunni í dag, miðvikudag, og hefjast klukkan 12.15. Tónleikaröðin er undir stjórn Gerrit Schuil píanóleikara.

Hinir reglulegu hádegistónleikar „Ljáðu okkur eyra“ verða haldnir í Fríkirkjunni í dag, miðvikudag, og hefjast klukkan 12.15.

Tónleikaröðin er undir stjórn Gerrit Schuil píanóleikara. Dagskrá hverra tónleika er ekki auglýst fyrir fram né flytjendur. Vegfarendum er boðið að líta inn á þessa ókeypis tónleika og eiga góða stund með því snjalla tónlistarfólki sem kemur fram með Gerrit hverju sinni. „Mörgum tónleikagestum finnst spennandi að láta koma sér á óvart þegar þeir mæta og komast að því hver sé gestur dagsins,“ segir Gerrit.