Bjarni Benediktsson
Bjarni Benediktsson
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hélt því fram á Alþingi í gær í umræðum um þingsályktunartillögu um meðferð frumvarps stjórnlagaráðs til stjórnarskipunarlaga, að greinilegt væri af áherslu stjórnarliða á að koma málinu í gegnum...

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hélt því fram á Alþingi í gær í umræðum um þingsályktunartillögu um meðferð frumvarps stjórnlagaráðs til stjórnarskipunarlaga, að greinilegt væri af áherslu stjórnarliða á að koma málinu í gegnum þingið að það væri greiðslan til Hreyfingarinnar fyrir að verja ríkisstjórnina falli.

Nokkur kurr varð í þingsalnum við þessi orð Bjarna en enginn kom hins vegar upp í ræðustól í kjölfarið og hafnaði þeim. Þá sagðist Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, telja að ekki myndi takast að breyta stjórnarskránni með þeim aðferðum sem lagt hefði verið upp með til þess. Aðferðafræðin sjálf sæi til þess.