Þakkir Ég vil þakka blaðburðarfólkinu sem hefur borið út Morgunblaðið í Bergstaðastræti í gegnum árin. Ég vil líka þakka unga manninum sem ber út Fréttablaðið og stúlkunni sem ber út póstinn. Guðrún.
Þakkir
Ég vil þakka blaðburðarfólkinu sem hefur borið út Morgunblaðið í Bergstaðastræti í gegnum árin. Ég vil líka þakka unga manninum sem ber út Fréttablaðið og stúlkunni sem ber út póstinn.
Guðrún.
Leikrit sem gaman væri að sjá
Er hægt að fá á fjalirnar leikritið Sigrún Ástrós sem Margrét Helga lék í og einnig leikritið Stundarfrið eftir Guðmund Steinsson? Þessi leikrit opna augu fólks fyrir firringu nútímans og deila á samfélagið í leiðinni.
Þenkjandi kona.
Svarað í síma 5691100 frá 10-12 velvakandi@mbl.is