— Morgunblaðið/Ómar
Leigubílstjórar eru margir hverjir að kikna undan kostnaðarhækkunum og þar vega þyngst verðhækkanir á dísilolíu og bensíni að undanförnu. Þetta segir Eysteinn Georgsson, formaður Freys, félags leigubílstjóra í Reykjanesbæ.

Leigubílstjórar eru margir hverjir að kikna undan kostnaðarhækkunum og þar vega þyngst verðhækkanir á dísilolíu og bensíni að undanförnu.

Þetta segir Eysteinn Georgsson, formaður Freys, félags leigubílstjóra í Reykjanesbæ. „Ástandið er orðið mjög alvarlegt. Olían hækkar stanslaust og við fáum engar niðurgreiðslur af neinu tagi,“ segir Eysteinn. „Um leið og verðið fer upp í 300 krónur er ég hættur,“ bætir hann við og gerir fastlega ráð fyrir að fjöldi annarra bílstjóra muni gera slíkt hið sama. Hann segir að eldsneytið sé ekki það eina sem hafi hækkað, kostnaður við tryggingar og dekkjaskipti sé einnig mjög þungur.

Eysteinn segir að enginn geti í dag endurnýjað bíl. „Það er gjörsamlega út úr kortinu og þarf ekki einu sinni að láta sér detta í hug að reyna það. Bíllinn sem ég ek í dag er kominn yfir 557 þúsund kílómetra. Mér finnst skelfilegt að horfa upp á að það eru komnir 15 og upp í 20 ára gamlir bílar í þessa vinnu,“ segir Eysteinn. 6