Toshiki Toma og Rakel Brynjólfsdóttir afhentu Jónasi Þórissyni fjárframlagið.

Jónas Þ. Þórisson, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar, tók fyrir helgi á móti peningum sem söfnuðust á landsmóti Æskulýðssambands þjóðkirkjunnar á Selfossi í lok október á síðasta ári og sem æskulýðsfélög hafa safnað í eigin fjáröflun.

Búið er að senda peningana, tæpar 240.000 krónur, til samtakanna Hearts of Gold í Japan sem ætla að nota þá til að styðja börn í Fukushima sem misstu foreldra sína í náttúruhamförunum í Japan í mars í fyrra.

Það voru Rakel Brynjólfsdóttir, landsmótsstjóri, og Toshiki Toma, prestur innflytjenda, sem afhentu Jónasi fjárframlagið.