Guðmundur Ingvar Magnússon fæddist 25. febrúar 1933 á Flateyri við Önundarfjörð. Hann lést á Droplaugarstöðum 4. febrúar 2012.

Ingvar var jarðsunginn frá Kópavogskirkju 14. febrúar 2012.

Bróðir minn, Ingvar Magnússon fæddist hinn 25. febrúar 1933 á efri hæðinni í Gunnlaugshúsi á Flateyri. Hann var því nær 79 ára er hann lést, 4. febrúar sl. Ingvar var tvíburi. Tvíburasystir hans Guðný Maria Magnúsdóttir Cray býr í Seattle í Bandaríkjunum. Þegar tvíburarnir fæddust, hafði móðir okkar þegar fætt 8 börn, svo systkinin litlu fæddust inn í stóra fjölskyldu. Hinn 10. maí, aðeins rúmum tveim mánuðum síðar, dó móðir okkar úr lungnabólgu. Hér var því úr vöndu að ráða hjá föður okkar, en það varð að ráði að litlu tvíburarnir færu í fóstur, stúlkan til Margrétar Guðleifsdóttur, vinkonu móður okkar, og Guðmundar Sigurðssonar, manns hennar, en piltbarnið fór til föðurbróður okkar, Jóns Ingvars Péturssonar og konu hans, Guðmundu Magnúsdóttur. (Guðmunda tók sér síðar nafnið Hildur). Þau hjónin bjuggu þá á neðri hæð Gunnlaugshússins, en fluttust skömmu síðar í nýbyggt hús sitt, sem stóð rétt við Bótarlækinn, það hús eyðilagðist í snjóflóðinu mikla 1995. Þau hjónin áttu fyrir tvær dætur, Jóhönnu og Kristjönu (Lillý), sem tóku á móti litla karlmanninum af mikilli gleði. Þarna ólst Ingvar upp við gott atlæti. Nafn sitt hafði hann fengið frá þeim hjónum og hét fullu nafni Guðmundur Ingvar. Það var mjög kært með þeim bræðrum, föður mínum Magnúsi og Jóni og mikil samskipti milli fjölskyldna þeirra. Við Ingvar lékum okkur mikið saman á æskuárunum, enda átti hann heima rétt hjá helstu siglingatjörninni, sem óspart var notuð. Það var algengt að koma svolítið blautur heim í lok dags. Við áttum margar góðar minningar frá þessum tíma sem við áttum saman. Það varð mér því nokkurt áfall þegar þau hjónin Jón og Hildur Guðmunda fluttu til Reykjavíkur 1942 og samfundir urðu æði strjálir eftir það, uns komið var langt fram á unglingsárin, að fundum bar oftar saman, er Reykjavík og nágrenni voru orðin samastaður okkar allra. Þau hjónin munu hafa flutt til Reykjavíkur til að vera í námunda við dóttur sína, Jóhönnu, sem í upphafi hjúkrunarnáms síns hafði smitast af berklum og lá á Vífilsstöðum þar til hún lést 1942.

Ingvar gekk í Gagnfræðaskóla Austurbæjar og síðar lá leiðin í Samvinnuskólann, sem þá var í Reykjavík. Að námi loknu lá leið hans á Keflavíkurflugvöll, þar sem hann starfaði síðan óslitið sem ráðgjafi og þýðandi hjá yfirstjórn hersins þar til starfsævi lauk. Hann gekk ungur til liðs við Kiwanishreyfinguna og starfaði þar meðan heilsan leyfði og hlaut þar æðstu metorð, enda traustur félagi, duglegur, glaðsinna og góður drengur. Ingvar varð þeirrar gæfu aðnjótandi að eiga góða konu, Jennýju Bjarnadóttur og eignast með henni þrjú mannvænleg og góð börn. Til þeirra hjóna var ætíð gott að koma, enda þau bæði hlý og glaðsinna fólk. Með okkur lifir minningin um góðan dreng. Við þessi ferðalok Ingvars sendum við okkar hlýjustu samúðarkveðjur til Jennýjar, barnanna og fjölskyldna þeirra.

Óskar og Þórunn.

Föðurbróðir minn Ingvar Magnússon er fallinn frá. Ingvi, eins og ég kallaði hann ávallt, var uppáhaldsfrændinn alla tíð. Frá blautu barnsbeini man ég eftir Ingva og Jenný og hversu gaman mér þótti að koma til þeirra á Nýbýlaveginn. Ég hlakkaði til að fara í heimsókn með mömmu og pabba til Jennýjar og Ingva. Ekki einatsta þótti mér gaman að hitta þau hjónin en ég leit afar upp til frændsystkina minna þeirra Bjarna og Fríðu og síðar eignaðist ég góðan vin í Ingvari, yngsta syni þeirra. Minnisstæðast þykir mér hve Ingvi var alltaf blíður og góður við mig. Ávallt spurði hann mig sömu spurningarinnar þegar við hittumst; „hvað segir þú frændi“ og framan af var næsta setning „þú hefur stækkað síðan síðast“. Ég man líka hversu hlýlegur hann var við mömmu mína alla tíð. Pabbi og Ingvi voru bræður, vinir og félagar. Þeir ræddu oft saman og þegar ég var yngri vissi ég aldrei hvort var verið að tala í gríni eða alvöru.

Ferðalögin sem fjölskyldurnar fóru í urðu að þjóðsögum í mínum eyrum því ég var ekki fæddur fyrr en löngu seinna. Ég naut þess þó þegar ég var barn að fá að fara hringinn með fjölskyldu minni og fjölskyldu Ingva. Þrjátíu og sjö árum seinna man ég þá ferð eins og hún hafi verið farin síðasta sumar. Við áttum einnig skemmtilegar stundir í Lúxemborg hjá Fríðu og Hansa með Björn Hlyn son okkar Ólafar fyrir rúmum tveimur áratugum. Þetta man maður af því þessar minningar eru góðar og ylja manni um hjartarætur þegar fram líða stundir.

Ingvi vann hjá hernum suður á velli og þegar ég var yngri hélt ég að hann réði öllu á Keflavíkurflugvelli. Hann vissi allt og gat allt í mínum huga og var klárastur allra. Ég man líka að þegar faðir minn keypti bíl, sem var æði oft, var farið til Ingva og hann fenginn til að prófa og segja til um hvort bíllinn væri nothæfur eður ei. Einu sinni var ég kassabílaeigandi. Einhverju sinni datt mér í hug að ýta kassabílnum við annan dreng suður í Kópavog til Ingva og Jennýjar. Við fórum sem leið lá úr Álftamýrinni, suður Kringlumýrarbraut alla leið að Nýbýlavegi og upp Nýbýlaveginn uns komið var að númer 28c eins og húsnúmerið var fyrir breytingu. Við fengum konunglegar móttökur hjá Ingva og Jenný og ég montaði mig mikið með bílinn. Þessar minningar skjóta oft upp kollinum og mér þykir vænt um þær eins og mér þótti vænt um kæran frænda.

Elsku Ingvi, megi minning þín lifa um alla framtíð.

Pétur Ragnar Pétursson.

Við lát góðs vinar streyma minningarnar fram. Ég kynntist Ingvari er ég gekk í Kiwanisklúbbinn Eldey í Kópavogi. Ingvar var einn af stofnendum klúbbsins og mikil driffjöður í öllu starfi hans. Hann tók vel á móti nýjum félögum og varð ég þeirrar ánægju aðnjótandi að vera borðfélagi hans í yfir 30 ár.

Ingvar var einstaklega jákvæður og skemmtilegur borðfélagi, sem hafði ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum. Hann var vel máli farinn og hafði ánægju af að tjá sig, kom með skemmtilegar samlíkingar og vitnaði í ljóð og heimsbókmenntirnar. Minnist kona mín samverustunda þar sem þau Ingvar skemmtu sér við að slá hvort öðru við með tilvitnunum úr ljóðum og leikverkum á ensku í samtölum sínum. En Ingvar starfaði lengst af starfsævi sinni hjá Bandaríkjamönnum á Keflavíkurflugvelli og var enskan honum töm.

Það var einstaklega ánægjulegt að koma á heimili Ingvars og Jennýjar konu hans og njóta þeirra yndislegu nærveru og gestrisni. Við hjónin erum þakklát fyrir skemmtilegar samverustundir í fjölmörgum ferðum á Kiwanisþing bæði hérlendis og erlendis.

Ingvar gegndi mörgum trúnaðarstörfum í Eldey og var m.a. forseti klúbbsins 1976-1977. Hann starfaði lengi í umdæmisstjórn Kiwanishreyfingarinnar á Íslandi og Færeyjum, var umdæmisritari 1978-1979, umdæmisstjóri 1981-1982 og erlendur ritari umdæmisstjórnar í 22 ár á árunum 1974-2001. Ingvar var óspar á tíma sinn fyrir Kiwanishreyfinguna og nutum við Kiwanismenn, sem á eftir honum komum í umdæmisstjórastarfið, leiðsagnar hans. Við Kiwanisfélagar hans í Einherjum, félagi fyrrverandi umdæmisstjóra, þökkum honum fyrir hans óeigingjarna starf fyrir Kiwanishreyfinguna og samstarfið í gegnum árin.

Ingvar átti við veikindi að stríða síðastliðin ár, en hann stóð ekki einn, hans yndislega fjölskylda stóð þétt við bak hans og studdi hann, með Jenný í broddi fylkingar. Hann var mikill snyrtipinni, þegar ég kom til hans að klippa hann á Droplaugarstöðum, þar sem hann dvaldi síðustu mánuði, þekkti hann mig alltaf og var gaman að sjá sömu glettnina í augum hans sem fyrr og heyra skemmtilegan hlátur hans. Ég kveð vin minn Ingvar Magnússon með söknuði og þakklæti og votta fjölskyldu hans innilega samúð.

Stefán R. Jónsson.

Við kveðjum Ingvar Magnússon hinstu kveðju.

Ingvar var einn af stofnendum Kiwanisklúbbsins Eldeyjar fyrir 40 árum þann 14. feb. 1972. Hann var ötull, duglegur og til sóma fyrir Kiwanishreyfinguna.

Kona hans er Jenný Bjarnadóttir og stóð hún við hlið hans alla tíð. Þau voru glæsileg hjón sem höfðu góða nærveru og var mannbætandi að vera í nálægð þeirra. Það var einstakt hvað hún hlúði að honum þegar hann veiktist. Við biðjum Guð að styrkja og styðja fjölskylduna. Við hjónin þökkum ógleymanlegar samverustundir.

Lifðu sæll á lífsins vegi,

ljúfur Drottinn fylgi þér.

Frelsarinn þig faðma megi,

fögnum því sem liðið er.

(Ólöf Kristjánsdóttir)

Sigríður og Sverrir.

Ég vil minnast hans Ingvars, míns gamla félaga, með nokkrum orðum. Við Ingvar unnum báðir hjá Varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli í á fimmta áratug. Það var nokkuð langt á milli vinnustaða okkar þar, en samt kynntumst við nokkuð á sjötta áratugnum og enn betur þegar ég undirritaður kom sem stjórnarmaður í Lífeyrissjóð íslenskra stjórnunarstarfsmanna Varnarliðsins, en Ingvar var þá stjórnarformaður sjóðsins. Áttum við þar mjög gott samstarf um margra ára skeið. Síðar byrjuðum við sem akstursfélagar á milli heimila okkar á höfuðborgarsvæðinu og til vinnustaða okkar á Vellinum. Stóð sú samvinna þar til Ingvar lét af störfum á árinu 2005, þá 72 ára gamall. Starf Ingvars var að annast þýðingar úr íslensku á ensku og öfugt fyrir flotaforingja Varnarliðsins og liðsmenn hans. Ingvar var fær þýðandi og virtur í starfi. Ég bað hann einu sinni að þýða minningargreinar um bróður minn á ensku, því ég ætlaði að senda þær til ættingja erlendis. Þetta var hið mesta aufúsumál af hans hálfu og fékk ég þýðinguna til baka fljótt og frábærlega vel gerða. Ingvar átti við mikla vanheilsu að stríða síðustu þrjú árin.

Jenný, við Margrét vottum þér, börnunum og fjölskyldum okkar dýpstu samúð.

Einar Róbert Árnason.

Einhvern tíma las ég í bók að strákar gætu aldrei eignast betri vini en þá sem þeir kynntust fyrir tólf ára aldur. Sjálfsagt má deila um þetta en ég veit að römm er sú taug sem tengir okkur Ingvar vin minn saman. Ég var sex ára og hann ári yngri þegar Begga frænka mín byrjaði með Bjarna, stóra bróður Ingvars, og fljótlega upp úr því var ég orðinn heimalningur á heimili Ingva og Jennýjar á Nýbýlaveginum.

Varla leið sá dagur alla grunn- og menntaskólagönguna að ég kæmi ekki við á Nýbó þar sem Jenný ofdekraði mig með frábærum mat og kræsingum og Ingvi kjaftaði við mann um alla skapaða hluti; bíla, pólitík, Ronald Reagan, Rússagrýluna og auðvitað stelpur en hann tók að sér að skóla okkur strákana til í samskiptum við stelpurnar sem við vorum með á heilanum hverju sinni. Og þegar við gengum of langt í bulli og vitleysisgangi setti hann upp ógleymanlegan svip og sagði: „Don't be daft.“ Og þar með var það útrætt. Ekkert bull.

Ég held að óhætt sé að segja að í Ingva og Jennýju hafi ég eignast annað sett af foreldrum og þau tóku virkan þátt í öllum ævintýrum okkar strákanna og studdu okkur með ráðum og dáð. Ingvi gerði það sem hann gat til þess að kenna mér að bera mig mannalega og kenndi mér til dæmis að pússa skó að hætti bandarískra hermanna. En til þess að fá góðan glans á skóna voru slíkir lítið fyrir að dandalast við að maka kampavíni á leðrið. Þegar búið er að pússa svertuna hrækir maður einfaldlega á skóinn og djöflast svo með burstanum þangað til hægt er að spegla sig í glansinum. Frá því ég var fjórtán og allt fram á þennan dag hef ég ekki pússað skó án þess að hugsa til Ingva og mun gera það áfram um ókomna tíð.

Eins og óskrifuð lög félagsfræðinnar gera ráð fyrir myndast óhjákvæmilega vík milli vina þegar kærustur, eiginkonur, börn og fjölskyldulíf fylla upp í það tómarúm í lífinu sem við fylltum áður með strákapörum. Þau eru því orðin ansi mörg árin sem hafa liðið frá því ég kom síðast í heimsókn á Nýbýlaveginn og síðast þegar ég sá Ingva var hann í fullu fjöri, sjálfum sér líkur, háðskur og hress. Mér varð því illa brugðið þegar ég frétti af veikindum Ingva fyrir nokkrum árum. Einhvern veginn fannst mér að ég gæti kíkt við á Nýbýlaveginum og gengið að honum vísum í sjónvarpsholinu með logandi sígarettu og tekið góðan snúning í þrasi um pólitík og aðra vitleysu.

Ég er búinn að vera lengi á leiðinni að heimsækja minn gamla vin, sem var einhver traustasta brú yfir kynslóðabil sem ég hef kynnst, en nú er það orðið of seint. Það er sárt en um leið finn ég huggun í því að í minningum mínum er Ingvi nákvæmlega eins og hann var upp á sitt besta. Eins og við öll sem nutum þess að kynnast honum viljum helst muna hann.

Þrátt fyrir öll þau ár sem liðu án þess að ég hitti Ingva skilur hann eftir sig skarð og söknuð og frá því ég frétti af andláti hans hef ég kastast til í hringiðu dásamlegra minninga æskuáranna úr Kópavogi á milli þess sem hugur minn dvelur hjá hans nánustu sem hafa misst svo miklu meira en ég nú þegar Ingvi hefur kvatt þennan heim.

Þórarinn Þórarinsson.

Laugardaginn 4. febrúar lést Ingvar Magnússon, fyrrum umdæmisstjóri og einn af stofnfélögum Kiwanisklúbbsins Eldeyjar, á 79. aldursári.

Ingvar var einn af þessum atorkufélögum sem Kiwanishreyfingin hefur verið svo heppin að eiga í gegnum árin.

Hann var fyrsti erlendi ritari umdæmisstjórnar og gegndi því starfi í áratugi, lengur en nokkur annar.

Það segir mikið um það hversu góður embættismaður hann var og hans er minnst fyrir.

Hann varð líka fyrsti svæðisstjórinn fyrir Eldey, fyrsti umdæmisritarinn, og síðast en ekki síst fyrsti Eldeyjarfélaginn til að gegna embætti umdæmisstjóra Kiwanishreyfingarinnar í umdæminu Ísland, Færeyjar.

Þessi stutta upptalning á störfum Ingvars fyrir Eldey segir mikið um hversu öflugur Kiwanisfélagi Ingvar var á upphafsárum Eldeyjar.

Hann var virkur félagi allt þar til veikindi hin síðari ár komu í veg fyrir að hann gæti sótt fundi.

Fyrir hönd okkar Eldeyjarfélaga þakka ég honum samstarfið í gegnum árin og sendi fjölskyldu hans okkar innilegustu samúðarkveðjur.

Með vinsemd og virðingu,

Eyþór Einarsson

forseti Eldeyjar.