Fyrirtækið Iceland Excursions hefur keypt tíu nýjar rútur. Hafa fimm þeirra verið teknar í notkun og hinar fimm bætast í bílaflota fyrirtækisins í vor. Tvær af rútunum taka 59 farþega og þrjár taka 19 farþega.
Fyrirtækið Iceland Excursions hefur keypt tíu nýjar rútur. Hafa fimm þeirra verið teknar í notkun og hinar fimm bætast í bílaflota fyrirtækisins í vor.
Tvær af rútunum taka 59 farþega og þrjár taka 19 farþega. Stóru rúturnar tvær eru af gerðinni Volvo, yfirbyggðar hjá Sunsundegui á Spáni. Minni rúturnar þrjár eru af gerðinni Mercedes Benz Sprinter.
Samkvæmt upplýsingum frá Iceland Excursions eru nýju bílarnir búnir sérlega þægilegum sætum og öryggisbúnaði sem og nútímaþægindum eins og sjónvarpi, DVD-spilara og þráðlausu neti.