Tónlist Texti lagsins Anarchy in the UK í vegglistaverki í London.
Tónlist Texti lagsins Anarchy in the UK í vegglistaverki í London. — Reuters
Pönkrokkararnir í Sex Pistols staðfestu í gær að hljómsveitin hefði gert nýjan plötusamning við útgáfufélagið Universal.
Pönkrokkararnir í Sex Pistols staðfestu í gær að hljómsveitin hefði gert nýjan plötusamning við útgáfufélagið Universal. Stefnt er að því að gefa út lengda og endurgerða útgáfu af plötunni Never Mind The Bollocks, Here's The Sex Pistols og á hún að koma út seinna á þessu ári. Sex Pistols er eflaust þekktust fyrir smelli eins og Anarchy In The UK og God Save The Queen en að sögn framleiðanda hjá Universal verður það áskorun að endurskoða og endurútgefa meistaraverk hljómsveitarinnar en fyrirtækið hlakki til verkefnisins.