Ásdís Magnea Ingólfsdóttir „Maddý“ var fædd á Kárastíg 13 í Reykjavík hinn 20. júní 1954. Hún lést 20. febrúar 2012.

Foreldrar hennar eru Ólafía Kolbrún Óskarsdóttir, fædd 16. mars 1936, og Ingólfur Arnór Magnússon, fæddur 11. apríl 1933, dáinn 16. apríl 1983. Systir Maddýjar er María Petrína Ingólfsdóttir, fædd 9. september 1955. Sambýlismaður hennar er Þorlákur Rúnar Loftsson, fæddur 13. september 1952. Börn Maríu eru Kolbrún Arna Villadsen, fædd 9. febrúar 1974, og Ingólfur Freyr Elmers, fæddur 18. apríl 1979. Maddý ólst upp hjá föðurforeldrum sínum, Ásdísi Pétursdóttur og Magnúsi Grímssyni, frá 8 ára aldri. Fyrst bjuggu þau á Kárastíg 13, Reykjavík, og síðar fluttu þau í Háagerði 35, Reykjavík, þar sem Maddý bjó þar til hún veiktist 2010. Síðastliðið ár hefur hún dvalið á hjúkrunarheimili þar sem hún lést 20. febrúar síðastliðinn. Árið 1983 giftist hún Bjarna Þórarinssyni og voru þau gift þar til 2006. Foreldrar Bjarna eru Svanhildur Bjarnadóttir, fædd 8. febrúar 1937, dáin 5. janúar 2002, og Þórarinn Guðmundsson, fæddur 9. júní 1936, dáinn 12. október 1995. Sem ung stúlka vann Maddý við afgreiðslustörf, síðar snéri hún sér að því sem varð hennar ævistarf og átti hug hennar allan. Vann hún meðal annars á Arnarholti í 12 ár og hjá Útideild Reykjavíkur fyrir unglinga frá stofnun þess og var þar í allmörg ár. Maddý var menntuð sem áfengis- og vímuefnaráðgjafi og síðustu starfsár var hún forstöðukona unglingaheimils í Dalbrekku í Kópavogi.

Ásdís Magnea verður jarðsungin frá Hallgrímskirkju í dag, þriðjudaginn 28. febrúar 2012, kl. 13.

Elsku sæta, sætastan mín. Ég trúi því varla að ég sé að kveðja þig í hinsta sinn í þessari jarðvist, en svona er það víst.

Þegar ég var 21 árs nýbökuð móðir með Helenu mína þriggja mánaða, þú 12 ára, vorum við saman eitt sumar hjá frændfólki okkar í Biskupstungunum, þú að passa þrjú börn, ég ráðskona að elda og hugsa um heimilið.

Eftir þetta varð ekki aftur snúið hjá okkur, svo náið varð samband okkar. Í mínum huga erum við sem mæðgur, systur, nöfnur og frænkur. Síðan giftist ég honum Geira mínum og eignaðist Ilmi litlu og alltaf varst þú með í öllu og þið Geiri líka svo miklir vinir. Þú varst hjá okkur í Keflavík, með okkur í Danmörku þegar Geiri fór að læra, með stelpunum mínum alla tíð sem stóra frænka og vinkona, með barnabörnunum mínum sem „gamla uppáhaldsfrænkan“. Með í öllum afmælum, skírnum, fermingum, giftingum, útskriftum, í sorg og í gleði, já bara með í öllu lífinu mínu.

Þú varst falleg, hlý, skapstór og réttsýn, trygg, frændrækin, vitur, dugleg, kjarkmikil, heiðarleg, listræn, jákæð, þakklát, húmoristi, mikill fagurkeri, já, svo varstu svo mikil alvöru hefðardama. Þú varst alveg „unik“ kona.

Samverustundirnar okkar, elsku Maddý mín, eru svo margar og svo margbreytilegar, svo dýrmætar að ég veit ekki einu sinni hverjar ég á helst að þakka þér sérstaklega nú á þessari stundu.

Ég held ég þakki þér bara jafnmikið fyrir þær allar. Ég er líka svo þakklát þér fyrir uppeldið á stelpunum mínum, en þú átt ótrúlega mikinn þátt í því. Þegar þær giftu sig undirbjóst þú gæsapartíin þeirra og skipulagðir alfarið. Enginn gat gert það betur og enginn þekkti þær jafnvel og þú, allt í þeirra anda, allt með þínu ívafi, allt svo fallegt og elegant.

Þú varst svo mikil fyrirmynd fyrir þær. Það er svo ótrúlega mikið af þér í þeim.

Ég sé þig í Helenu minni þegar hún er að nostra við heimilið sitt, þegar hún sýnir sína einstöku tryggð, þegar hún lætur í ljós sínar skoðanir með festu og réttsýni og þegar hún velur sér föt af fínustu gerð. Ég sé þig í henni Ilmi minni þegar hún sýnir sína miklu hlýju, húmorinn, dugnaðinn, kjarkinn og listrænu hæfileikana. Ekki síst birtist þú í báðum stelpunum mínum í þeirra uppeldi á sínum börnum.

Engin manneskja hefur hælt mér og fjölskyldunni jafnmikið og þú elsku hjartað mitt.

Hversu oft komstu til okkar Geira og dætra minna, gekkst um heimilin okkar, tókst eftir öllu, hældir öllu og okkur sjálfum mest.

Hversu oft sagðir þú við mig elsku Maddý mín: „Það er svo mikið ríkidæmi að eiga ykkur öll“ eða „Þú ert svo góð við mig elsku frænka mín“ eða „Þið eruð svo mikið fjölskyldan mín“, bara endalaust hól og endalaus jákvæðni alltaf.

Eitt er víst, enginn hefur kennt mér eins mikla jákvæðni og þú.

Sem betur fer sagði ég þér alltaf hversu mikið ég elska þig og hversu stórt pláss þú átt í hjartanu mínu.

Ég kveð þig elsku frænka mín með óendanlegu þakklæti, ást og söknuði.

Megir þú hvíla í Drottins náð og friði.

Þín

Magnea frænka.

Elsku Maddý frænka.

Það er svo sárt að missa þig. Ég sé þig fyrir mér labba upp tröppurnar á húsinu mínu við Grettisgötuna, þú þarft að hafa dálítið fyrir því og þú minnist hlæjandi á handriðið sem ég hef ætlað að setja upp fyrir þig frá því ég flutti í húsið en hef ekki komið í verk. Svo svífur þú inn og talar fallega um allt sem fyrir augu ber. Ekkert fer framhjá þér, þú tekur pláss, sem er gott því þú ert svo falleg manneskja, svo næm og forvitin um lífið, svo jákvæð og geislandi. Að hafa fengið að fylgjast með því hvernig þú nærðir þína kvenlegu eiginleika og dekraðir við sjálfa þig hefur kennt mér meira en allir skólar sem ég hef farið í til samans. Þú ert líka mesti fagurkeri sem ég hef kynnst.

Það var ekki einn fersentímetri á heimili þínu sem mig langaði ekki að stara endalaust á. Og hvernig þú klæddir þig og málaðir þig, hvernig þú nostraðir við að skreyta jólatré eða veisluborð. Allt varð að heilagri athöfn, sem endurspeglaði næmni þína. Og ekki sparaðir þú hrósið. Allt sem ég gerði var stórkostlegt, mest og best. Þú hefur ávallt sagt að mér væru allir vegir færir. Og því trúði ég, vegna þess að þú lifðir þannig sjálf, þú hefur alltaf verið töffari sem lætur ekkert stöðva þig.

Ekki hvarflaði að mér, þegar þú hringdir í mig fyrir rúmu ári og sagðist vera of slöpp til að hitta mig á kaffihúsi að þú myndir ekki ná heilsu. Ég hef hugsað til þín daglega síðan þá, frá útlandinu mínu. Ég er með svo mikið planað fyrir okkur að gera þegar ég flyt heim í sumar. Falleg tískublöð og innanhússtímarit sem ég ætlaði að skoða með þér, bækur og greinar sem ég ætlaði að lesa upphátt fyrir þig, svo mikið af sænsku postulíni og antík sem ég ætlaði að fá álit þitt á.

Svo ætlaði ég að færa þér ilm af liljum, vanillu og espressó, sýna þér myndir af ilmvatnsklaustrinu í Flórens sem við höfum svo oft talað um og sýna þér nýja Santa Maria Novella-ilmvatnið mitt. Þú hefðir elskað að heyra um þessa elstu ilmvatnsfabrikku í heimi og ég bara veit ekki um neinn annan sem ég get deilt þessu með.

Ég á kannski aldrei eftir að skilja hvers vegna það eru okkar örlög að geta ekki verið saman í veikindunum þínum. En eitt er víst, að lífið verður aldrei eins án þín. Þín verður saknað á mörgum stöðum, þú ert þekkt alls staðar sem þú vandir komur þínar, fyrir það hvað þú gafst af þér fallegan þokka og jákvæða strauma. Ég er þakklát fyrir að ég skuli hafa fengið að vera samferða þér. Þú varst mér sem eldri systir, þú fylltir mig af trú á lífið og kenndir mér að hugarfarið er það eina sem skiptir máli.

Það er kaldhæðni örlaganna að með það þú sem kenndir mér að takast á við sorgina sem fylgir því að missa. Það hvernig þú tókst á við erfiðleika og sorg og leyfðir öllum tilfinningaskalanum að flæða gegnum þig var til eftirbreytni. Glasið þitt var alltaf hálffullt, aldrei hálftómt, alveg sama á hverju gekk – og það var ekkert smáræði sem þú þurftir að takast á við. Ég mun aldrei hætta að spyrja mig: „Hvernig hefði Maddý frænka tekist á við þetta?“ Ég elska þig og sakna þín.

Helena.

Frá því ég man eftir mér hefur djúp vinátta móður minnar og Magneu frænku minnar verið mér fyrirmynd að sterkri, ævilangri samstöðu og samkennd vinkvenna. Magnea frænka mín var einstök kona og í hennar návist var hversdagurinn aldrei hversdagslegur. Maddý hafði sérstakt lag á að gera alla atburði, bæði stóra og smáa, í lífi sínu og samferðafólks síns fallega og þýðingarmikla. Lífsgleði hennar, glæsileiki og einlægni hrifu alla sem henni kynntust. Maddý var trú sjálfri sér og bar aðdáunarverða virðingu fyrir sjálfri sér og öðrum. Hún fann ávallt leiðir til að hrósa og nálgast hvert og eitt okkar á þann veg að við urðum öll sérstök og mikilvæg. Það eru forréttindi að hafa haft konu eins og Maddý í lífi sínu og missir okkar er mikill og sár. Hún snerti líf ástvina sinna og falleg minning hennar mun lifa með okkur.

Henný.

Elsku engillinn minn! Takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig. Þú passaðir mig þegar ég var lítil, leyfðir mér að vera hluti af þér og öllu þínu, leyfðir mér að skoða og prófa alla hundrað varalitina þína og máta kórónuna þína. Allt sem þú átt og ert er eins og ævintýraveröld fyrir börn og fullorðna. Með þér er ég sannur gimsteinn og perla af því þú segir mér að ég sé einstök. Þú segir mér að ég sé ómetanleg í móðurhlutverkinu, að ég leyfi börnunum mínum að vera þau sem þau eru og blómstra. Ég heyri röddina þína segja mér allt það besta um sjálfa mig og ég ætla að varðveita öll þín fallegu orð alla tíð. Ég elska þig. Þín frænka,

Ilmur.

„Hve blásnautt er hjarta sem einskis saknar.“

(E. Ben.)

Allir dagarnir sem við höfum átt, elsku, elsku stelpan mín, okkar eilífa bernska og gleðin yfir að vera til. Hvernig sú gleði braust óbeisluð út þegar við vorum saman, sama hvernig allt velktist. Allt þetta þakka ég svo innilega fyrir.

Löngu farnar af sokkabandinu sem var uppspretta alls og komnar á lífstykkjaaldurinn en samt jesúsaði Maddý frænka Reinalds, sem er sanntrúuð kona, sig yfir okkur og signdi sig í bak og fyrir og kallaði okkur óforbetranlegar skvettur þegar hlátrasköllin voru að æra hana.

Ég get aldrei nógsamlega þakkað fyrir að hafa lifað þessa daga og ár í ómældri elsku þinni.

Hvíldu í hjarta mínu, elsku Maddý mín.

Edith Randy (Edittin).

Í heimi fullkomnunar var ég með þér á hverjum degi, alveg frá því við urðum hjartans vinkonur fyrir nokkrum árum. Í þessum heimi réði nánd og dýpt ríkjum. Ástin umvafði okkur og á sama tíma fengu systurnar gleðin og sorgin, ásamt öllum öðrum í tilfinningafjölskyldunni að vera með. Fullkomnunin fólst í því að það var rými fyrir að upplifa saman, allt það sem áður hafði verið, var og átti að vera. Þannig vorum við flæðandi óháðar tíma og rúmi, ýmist tvær eða með öðrum, sem voru eða komu inn í okkar líf.

Þú varst ekki bara vinkona mín heldur líka ótrúlega fögur fyrirmynd og fræðari. Að vera með þér og finna hvernig nærvera þín laðaði fram á heillandi hátt einstaka stemningu og dásemd í umhverfi og öðrum manneskjum, var og verður mér ómetanlegt. Hversdagsleikinn var aldrei hversdagslegur með þér. Það var unun að sjá hvernig þú sýndir öllu svo mikla alúð og lést þig allt varða sem hefðarkona, Íslendingur, manneskja, kona og sem Maddý. Þú hélst uppi heiðri merkra Íslendinga sem höfðu lagt sitt af mörkum við að skapa söguna almennt og einnig þína eigin sögu. En það gerðir þú með því að halda í gamlar hefðir á óhefðbundinn sem og hefðbundinn hátt með þínum einstaka persónulega stíl.

Saman bjuggum við svo til okkar hefðir og siði samhliða þeim gömlu og þannig sköpuðum við okkar sögu. En hún samanstóð af mörgum ævintýrum þar sem þráður örlaganna var ofinn með töfrum, dulúð, dramatík og fegurð og við það varð hið ótrúlega að hinu trúlega.

Þó svo að hjarta mitt sé fullt af sorg og söknuði nær þakklætið oftast að vera yfirsterkara því að þær gjafir sem mér hefur hlotnast frá þér hafa veitt mér svo mikla hamingju og hafa gert mér fært að búa við mikið innra og ytra ríkidæmi.

Ævintýrin sem eitt sitt voru okkar munu halda áfram sem mín ævintýri og veit ég að þú fylgir mér sem verndardís. Verndari ástarinnar, kærleikans og frelsisins, alls sem þú trúðir á og lifðir eftir. Og þetta veit ég þar sem að þú skildir mig eftir í faðmi þeirra yndislegu kvenna sem í lífi þínu voru. Ég þakka þér af öllu mínu hjarta.

Þú munt ávallt lífa í mér, Maddýin mín.

Þín elskandi og saknandi vinkona,

Elísabet.

Maddý og mamma mín hafa verið bestu vinkonur síðan þær muna eftir sér og hefur Maddý því ávallt verið stór hluti af mínu lífi. Fyrstu minningarnar mínar um Maddý einkennast því af ævintýralegum hugsunum barns því ég var nokkuð viss um að Maddý væri álfaprinsessa. Fallegir langir slöngulokkar, stór blá augu, tignarlegt fas og fallegt bros spiluðu þar stórt hlutverk.

Eftir því sem ég varð eldri áttaði ég mig á því að Maddý var ekki álfaprinsessa en ég hef þó ávallt vitað að Maddý er betri manneskja en flestir aðrir. Þannig tók hún því ávallt vel þegar ég leitaði til hennar, hvort heldur sem var vegna vandræða unglingsáranna, þegar mamma var að reyna að leggja mér línurnar í lífinu eða ég lenti í aðstæðum sem mér fannst ég einhverra hluta vegna ekki ráða við.

Ég hef alltaf getað gengið að því vísu að Maddý yrði til staðar fyrir mig, hún vissi upp á hár hvað þyrfti til hverju sinni. Það að fara með mig fullorðna á KFC til þess að drekkja sorgum í djúpsteiktum kjúklingi, gefa mér koddaver með bleikri áletrun, „lífið er ljúft“, eða ræða við mig í síma klukkustundum saman bjargaði oft sálartetri mínu.

Fyrir nokkru var Maddý spurð að því uppi á Hrafnistu hvort ég væri dóttir hennar. Hún var ekki lengi að svara því játandi. Þegar sá sem spurði fór að spyrja hana nánar út í þetta útskýrði hún fyrir honum að þrátt fyrir að hún hefði ekki fætt mig í þennan heim ætti hún án efa stóran hlut í mér þar sem mamma mín væri besta vinkona hennar og ég hefði því ávallt getað leitað til hennar. Maðurinn fékk síðan í óspurðum fréttum að heyra að hún og mamma hefðu á sínum yngri árum verið gerðar brottrækar úr Færeyjum. En þær stöllur höfðu tekið upp á því að syngja og tralla úti á götu með hatt fyrir framan sig sem setja átti pening í en svo kom í ljós að betl var víst bannað í Færeyjum. Slíkar sögur geta ekki annað en fengið mann til þess að brosa hringinn.

Í dag sá ég Maddý og varð þess heiðurs aðnjótandi að fá að greiða á henni hárið og snyrta hana í síðasta skiptið. Á þeim tímapunkti upplifði ég það sama og þegar ég var lítil, svo falleg kona gæti ekki verið annað en álfaprinsessa eða engill.

Elsku hjartans engillinn minn. Ég sakna þín alveg svakalega sárt og óska þess af öllu mínu hjarta að þú hafir það gott þar sem þú ert. Ég vona að þú sért í bleikum kjól og drekkir kampavín úr bleiku glasi. Ég skal passa mömmu fyrir þig. Þegar minn tími kemur treysti ég á að þú bíðir mín með kampavín í glasi.

Góða nótt elsku vinkona,

Saga Ýrr Jónsdóttir.

Elsku Maddý mín, mig langar að kveðja þig með nokkrum orðum.

Elsku Maddý mín, þú varst mjög veik í heilt ár og stóð Didda eins og klettur við hliðina á þér þar sem þú áttir nú bara eina systur og Kolla dóttir hennar, sem var nú í miklu uppáhaldi hjá þér. Ég þakka góðum Guði fyrir að hafa leyft þér að koma svona fljótt og losna undan þessum veikindum. Nú er kátt á hjalla hjá þér og Daddý systur, sem var nú besta vinkona þín frá æsku og við Didda vorum vinkonur, en með árunum urðum við allar fjórar vinkonur. Alltaf var kátt á hjalla hjá okkur öllum saman þegar þú mættir á svæðið og var mikið hlegið. Var ég mjög glöð að heimsækja þig og þú þekktir mig og gladdi það mig mikið. Þú vannst við mjög mikilvæg störf og eiga margir þér að þakka vel unnin störf og verður þín mjög sárt saknað. Elsku hjartans perlan mín Didda, við höfum verið vinkonur í mjög mörg ár og veit ég að þú átt um sárt að binda núna þar sem eina systirin er farin og vil ég votta þér mína dýpstu samúð og styrk. Vil ég votta Rúnari, Diddu, Kolbrúnu, Ingó og fjölskyldum þeirra mína dýpstu samúð.

Vin sínum

skal maður vinur vera,

þeim og þess vin.

En óvinar síns

skyli engi maður

vinar vinur vera.

(Úr Hávamálum)

Þín besta vinkona,

Anna og fjölskylda.