Nýfrumsýnda kvikmyndin Journey 2: The Mysterious Island er efst á aðsóknarlista bíóhúsanna eftir helgina en myndin er ævintýramynd fyrir alla fjölskylduna og fjallar um ungan mann sem leitar afa síns sem hann grunar að sé týndur á ævintýraeyju sem...
Nýfrumsýnda kvikmyndin Journey 2: The Mysterious Island er efst á aðsóknarlista bíóhúsanna eftir helgina en myndin er ævintýramynd fyrir alla fjölskylduna og fjallar um ungan mann sem leitar afa síns sem hann grunar að sé týndur á ævintýraeyju sem enginn veit að er til. Önnur ný mynd sem einnig var frumsýnd um helgina og vermir annað sæti listans er spennumyndin Ghost Rider: Spirit of Vengeance 3D með stórleikaranum Nicolas Cage í aðalhlutverki. Í myndinni snýr Cage aftur sem Johnny Blaze sem er bölvaður af kölska og neyddur til að vera mannaveiðari hans. Efsta mynd síðustu viku, This Means War, er komin niður í 3. sæti en á eftir henni koma nýjar inn á lista Haywire, A Few Best Men og Safe House. Contraband, mynd Baltasars Kormáks, er komin í 11. sæti.