Laurence Olivier leikur Heathcliff.
Laurence Olivier leikur Heathcliff.
Kvikmyndasafnið sýnir Wuthering Heights eða Fýkur yfir hæðir í leikstjórn William Wyler í Bæjarbíói í kvöld kl. 20. Myndin sem er frá árinu 1939 byggist á samnefndri skáldsögu Emily Brontë. Hún var á sínum tíma tilnefnd til átta Óskarsverðlauna, m.a.
Kvikmyndasafnið sýnir Wuthering Heights eða Fýkur yfir hæðir í leikstjórn William Wyler í Bæjarbíói í kvöld kl. 20. Myndin sem er frá árinu 1939 byggist á samnefndri skáldsögu Emily Brontë. Hún var á sínum tíma tilnefnd til átta Óskarsverðlauna, m.a. sem besta myndin og fyrir besta leikara í aðalhlutverki, en þurfti að lúta í lægra haldi fyrir Gone With The Wind sem sópaði til sín helstu verðlaunum umrætt ár. Myndin hreppti þó Óskar fyrir bestu kvikmyndatökuna hjá Gregg Toland sem er hvað frægastur fyrir kvikmyndatöku sína í Citizen Kane.