Japanski myndavélaframleiðandinn Olympus lagði í gær til skipun nýrrar 11 manna stjórnar fyrirtækisins.
Japanski myndavélaframleiðandinn
Olympus
lagði í gær til skipun nýrrar 11 manna stjórnar fyrirtækisins. Þetta er liður í tilraunum stjórnenda fyrirtækisins til að endurheimta traust, eftir að upplýst var um bókhaldssvindl fyrirtækisins í haust, upp á tæplega 200 milljarða króna. Lagt er til að Yasuyuki Kimoto, fyrrverandi forstjóri bankans
Sumitomo Mitsui
, aðallánardrottins Olympus, verði stjórnarformaður og að boðað verði til aukaaðalfundar, þar sem stjórnarkjörið verði samþykkt.