Bláfjallagangan fer fram næstkomandi laugardag, 3. mars. Gangan er partur af svokölluðum Íslandsgöngum. En þær eru skíðagöngumót sem fram fara víðsvegar um land yfir vetrarmánuðina. Keppt er í 3 aldursflokkum í 20 km göngunni 17-34 ára, 35-49 ára og 50 ára og eldri, bæði í karla- og kvennaflokki, og teljast mótin til stiga í Íslandsgöngunni.
Það er Skíðasamband Íslands sem hefur efnt árlega til mótsins síðan 1985. Í hverri göngu eru í boði fleiri en ein vegalengd þannig að allir eiga að geta fundið brautir við sitt hæfi. Nánari upplýsingar má nálgast á hlaup.is